Fín vika í gangi
Ég get fúslega viðurkennt að hausinn á mér er búinn að vera á þessum slóðum alveg síðan við komum heim. Nú er ég að hálfnaður inn í frekar erfiða æfingaviku og ég verð að segja að ég er mjög ánægður hvernig staðan er á mér. Mér líður eins og formið hafi „bömbast“ eitthvað upp þarna úti Tenerife. Ég byrjaði vikuna á VO2 max æfingu (110-125% af FTP) og tók svo þunga réttstöðu og uppstig sama dag (mánudag). Í fyrradag tók ég svo 3x10 mínútna threshold æfingu (95-105% FTP) og hún gekk súper vel þrátt fyrir erfiðan dag á undan. Í gær tók ég svo 2 tíma endurance æfingu rólega og í dag er hvíldardagur sem ég ætla að njóta í botn. Ég skaut FTP testinu sem ég ætlaði að taka í síðustu viku á frest þar sem ég var ekki alveg nógu ferskur en mér líður eins og ég megi ekki bíða með það mikið lengur. Mér finnst ég gæti verið að keyra á meiri ákefð og gæti þurft að leiðrétta sónin hjá mér svo ég sé að fá sem mest út úr æfingunum. Ein vísbending um þetta er að púlsinn hjá mér er farinn að vera læg...