Færslur

Sýnir færslur frá janúar, 2018

Meira um sjálfið

Gott, vont, hamingja, óhamingja.... rigning og þurrkur. Andstæður sem geta ekki án hvor annarar verið. Til þess að ég upplifi hamingju (sem er í sjálfum sér ekkert markmið sem slíkt) þarf ég að dragnast í gegnum einhverja óhamingju og erfiðleika. Þar eru tækifæri fyrir uppljómun. Í mínu bataferli síðustu mánuði hef ég verið að lesa ýmisslegt, hlusta á "podköst" og horfa á fyrirlestra á youtube. Það virðist ekki vera hægt að fara í að vinna með sjálfan sig í dag öðruvísi en að rekast á eitthvað um núvitund. Núvitund.... hvað er það? Eitthvað sem ég lokaði augunum fyrir vegna þess að mér fannst þetta ofnotað tískuorð... sem það er að vissu leiti. Það áhugaverðasta í þessum núvitundarpælingum fyrir mig hefur sennilega verið pælingarnar um sjálfið sem blekkingu og kannski í raun orsök allrar okkar óhamingju. Ég ætla ekki að fara djúpt í þetta hér en langar að birta brot úr bókinni Mátturinn í núinu eftir Eckhart Tolle sem opnaði augu mín ennþá betur fyrir þessu. Ef einhve