Færslur

Svo bregðast krosstré......

Mynd
Hjólið er komið á nýjan stað og tilbúið í æfingu. Ég ætlaði í tíma í ræktinni í dag en ég var bara eitthvað illa upplagður og þreyttur og ákvað að það væri fínt að hvíla. Þetta gerist nú eiginlega aldrei hjá mér en maður verður að reyna að hlusta á líkamann þegar hann lætur vita að gott sé komið í bili. Ég verð örugglega drullusprækur á morgun og hendi mér í æfingu þá. En ég sat s.s. ekki auðum höndum eftir að ég kom heim heldur sparslaði ég í loftið í herberginu, þreif aðeins og kom hjólinu fyrir á nýja staðnum. Viftan svínvirkar, gott að hafa gluggakisuna fyrir brúsa og næringu og tölvan verður á sínum stað fyrir framan smettið á manni.  Ef ég fer ekki á hausinn við Tene ferðina þá kaupi ég mér skjá eða snjallsjónvarp og Apple TV- annars má það bíða fram á næsta haust. Síðan ætla ég að setja fjöltengi með rofa á vegginn og ganga frá öllum snúrum. Lokafíneseringin verður einhver skemmtileg lýsing og svo langar mig til að hengja upp myndir úr mótum og hjólaferðum, númer, verðlaun o...

Gran Fondo í dag og ljósin á

Mynd
Daníel eðaldrengur og stjúpsonur að bjarga mér í rafmagnsmálum. Ég vaknaði rétt fyrir klukkan níu í morgun og skottaðist heim til mín til að taka æfingu. Það var langur dagur í dag, eða 2:35 klst á 165 W sem er neðarlega í Z2 eða ofarlega í Z1 (eftir því hvort ég horfi á 80/20 model eða Andy Coggan). Markmiðið með þessum æfingum er i) að auka virkni og rúmmál hvatberanna í hægu vöðvafrumunum og gera þær skilvirkari í að nota laktat (niðurbrotsefni glúkósa) sem orkugjafa og ii) auka getu hvatberanna í að nota fitu sem brennsluefni. Það fyrrnefnda er sérstaklega mikilvægt því að þegar maður þarf að taka mikið á því (hröðu vöðvaþærðirnir) þá myndast mikið laktat sem líkaminn þarf að losa sig við. Ef hægu vöðvaþræðirnir eru skilvirkir í að nota það sem eldsneyti, þá auðveldar þetta manni að jafna sig þegar maður er búinn að taka mikið á því, t.d. þegar maður fer upp brekku í keppni. Hægar endurance æfingar (Z1 og Z2) eru grunnurinn og bera uppi allt annað sem maður gerir.  Æfingin í da...

Rafmagnsleysi

Mynd
Útilegudótið bjargaði manni um kaffi í morgunsárið. Það var gefið út í gær að rafmagnslaust yrði í stórum hluta af Lundarhverfi í dag á milli kl. 08:00 og 16:00. Svolítið skrítið að gera þetta á laugardegi en sjálfsagt var það til að koma í veg fyrir að skólahald myndi falla niður. Kaffifíkillinn ég undirbjó mig vel fyrir þetta og hafði prímusinn tilbúinn til að bjarga morgunbollanum. Ég passaði líka að sjálfsögðu að síminn og fartölvan væru fullhlaðin svo maður myndi örugglega ekki missa af neinu á samfélagsmiðlum og úr fréttum. Ég breytti æfingaplönunum hjá mér út af þessu rafmagnsleysi þar sem ég átti langa æfingu í dag og nennti ekki að vera að hjóla fram að kvöldmat. Ég hjólaði niður í bæ í gær til að ná mér í nýjan router og á leiðinni heim tók ég vel á því. Þegar ég kom heim tók ég fína æfingu fyrir efripart og henti mér svo í erfiða 30 mínútna æfingu á hjólinu sem tók vel í lappirnar. Löngu æfinguna færði ég fram á morgundaginn. Frí og næsheit í dag. Ég fann ekkert til í ökklan...

Góðar fréttir

Mynd
Æfing gærdagsins. Eftir samtalið við Helgu systir í gær ákvað ég að kíkja upp á sjúkrahús og láta tékka á fætinum til öryggis. Hjúkrunarkona og læknir voru sammála að þetta liti frekar illa út en skoðun benti þó ekki til þess að neitt væri brotið eða alvarlega slitið. Ég bað þó um að fá að fara í röntgen bara til að taka allan vafa af um þetta. Ég hefði annars ekki verið rólegur að þjösnast á þessu. En niðurstaðan var góð; þetta er óbrotið og gott fyrir batann að hjóla. Ég hélt upp á þetta með að fara í ræktina og tók svo fína hjólaæfingu. Æfingin átti bara að vera róleg en ég bætti inní hana 25 mínútum af tempo þar sem mér leið helvíti vel og fann ekki fyrir neinu. Í dag mun ég taka 1,5 klst af endurance. Á morgun er bara rækt hjá mér og svo ætla ég að taka 2:35 klst. á laugardag og 1 klst recovery á sunnudag.  Af augljósum ástæðum hef ég lagt hlaupin á hilluna í bili en ég er svo ánægður með að geta hjólað að ég brosi allan hringinn. 6 vikur í sól og sælu :) 

Ýmist í ökkla eða eyra

Mynd
Tásumyndir frá Akureyri. Sumir senda tásumyndir frá Tene en ég sendi þær frá Akureyri. Ég bið ykkur afsökunar á þessum ósóma en sjálfum finnst mér áhugavert að fylgjast með þróuninni í þessu. Í gær hringdi ég í Helgu systir sem sagði að mér væri óhætt að hjóla og ganga. Líka mjög mikilvægt að gera stöðuleikaæfingar (standa á annari) og liðka þetta upp. Ég gekk því heim úr vinnunni í gær og þegar þangað var komið hjólaði ég í 30 mínútur. Það gekk super vel og ég fann ekki fyrir neinu. En þar sem marið er farið að koma í gegn alveg fram á tær, þá ákvað ég að senda Helgu mynd af þessu nú í morgun. Til að gera langa sögu stutta þá líst henni ekki vel á þetta og vill að ég fari á bráðamóttökuna og láti mynda þetta. Útiloka að eitthvað sé rifið eða að það sé ekki beinflís einhverstaðar á ferðinni. Hún sagði að það væri svo mikill vökvi og mikil bólga (og bólgufrumur) að það gæti deyft sársaukann og villt mér sýn. Ég verð að viðurkenna að nú er ég orðinn frekar órólegur og veit ekki alveg við...

Djúsí ökkli

Mynd
Það sér aðeins á þessu. Ég veit ekki alveg hvað ég á að segja um þessi ökklameiðsli mín? Ég er býsna kvalinn þegar ég stíg í fótinn á morgnana en svo líður þetta aðeins úr manni yfir daginn þegar maður liðkast og hitnar. Ég er snertiaumur á utanverðri ristinni en finn ekkert til innan á ökklanum- þó ég sé líka blár og marinn þar. Út frá þessu met ég það sem svo að ég hafi ekki slitið neitt og sé óbrotinn. En ég var reyndar aldrei mjög kvalinn þegar ég braut viðbeinið heldur. Ég ætla að heyra í Helgu systir á eftir og láta hana hjálpa mér að meta hvað sé ráðlegt varðandi hreyfingu næstu daga. Mig langar rosalega að setjast aðeins á hjólið á morgun en geri það að sjálfsögðu ekki ef hún ræður mér frá því. Það gæti reyndar líka verið helvíti vont að koma sér í hjólaskóinn.  Ég skellti mér í ræktina í gær og tók æfingar fyrir allan efripartinn. Planið næstu daga er svipað; æfingar fyrir ofan mitti og rólegt hjól um leið og ökklinn leyfir. 

Hræðilegt svekkelsi.

Mynd
Fótu upp í loft og svo er að vona það besta. Æfingar dagsins samanstóðu af 30 mínútna útihlaupi og klukkutíma rólegu hjóli (sem ekkert varð af). Það er glærasvell út um allan bæ en ég hafði s.s. ekki áhyggjur af því þar sem ég er svo vel negldur á gömlu Brooks skónum. Ég byrjaði hlaupið frekar rólega en svo fór ég að gefa í og var í hörku stuði. Þegar ég var kominn í tæpa 3 kílómetra á fínum hraða missteig ég mig hinsvegar hrikalega og varð að hætta. Ég reyndi aðeins að halda áfram en sá strax að það var ekkert vit í því. Ég skakklappaðist því heim og þegar þangað var komið setti ég fótinn í eldhúsvaskann í 20 mínútur og reyndi að kæla vel. Síðan át ég 2 ibufen og ligg nú hérna í sófanum með hátt undir fótinn. Þrátt fyrir verkjalyfin er ég frekar verkjaður í þessu og er hræddur um að ég þurfi að reyna að redda mér hækjum. Það er allaveg djöfull vont að stíga í fótinn.  Ef það er eitthvað sem ég hata, þá er það að geta ekki hjólað eða hreyft mig. Ég ætla ekki að mála skrattann á veg...