Færslur

Pota í nefið

Mynd
Dagbjört dugleg í sýnatöku. "Mér fannst þetta gott". Með haustinu heimsækja okkur kvefpestir og lítið við því að gera. Brynleifur er með í hálsinum og Dagbjört Lóa með hósta og hor. Ég hefði að öllu jöfnu sent börnin í skóla í dag en maður verður víst að hafa allt á hreinu og því dreif ég þau í sýnatöku. Ég hef farið í eina sýnatöku sjálfur og verð að segja að börnin voru ekki nálægt því jafn dramatísk og ég, sem kúgaðist og kúgaðist og fór hálf grenjandi út. En við höldum okkur s.s. til hlés í dag, eða allavega þar til að niðurstaða berst. Ég er alveg viss um að þetta er bara kvef og hef ekki áhyggjur. Það er tæplega 20°C hiti og sól og ég hugsa að ég leyfi börnunum að fara aðeins út að leika ef niðurstaðan er neikvæð/jákvæð- eftir því hvernig á það er litið. Ég hringdi í Kría hjól áðan og þeir eiga trainer á lager fyrir mig. Á morgun er víst 1. september og því ættu peningamálin að skýrast aðeins. Ég hef ekkert gert í því að selja úr byssuskápnum en hugsa að ég reyni að kom...

Eitt og annað

Mynd
Hér ætla ég að reyna að setjast niður í 10 mínútur á dag. Ég settist niður áðan í ca. 20 mínútur og gerði eina mynd af Trölladyngju sem ég málaði eftir ljósmynd úr ferðinni minni í sumar. Ég notaði bara pensla og reyndi að gera þetta frjálslega. Afraksturinn er kannski ekki til útflutnings en þetta var samt bara gaman. Ég er búinn að setja mér markmið að setjast niður í 10 mínútur á dag í 10 daga og föndra eitthvað. Teikna eða mála. Ég ætla að reyna að losa mig undan pressunni að þetta þurfi að vera eitthvað stórvirki og leggja áherslu á að koma mér að verki og sjá hvert það leiðir. Í gær hjóluðum við Þórður Eyjafjarðarhring og skelltum okkur í sund á Hrafnagili. Það blés helvíti hressilega á móti okkur á leiðinni suður eftir en það var nokkuð hlýtt og bara skemmtilegt. Fín tilbreyting að hafa einhvern með sér að hjóla. Í gærkvöldi var ég svo að spá í hvort ég hefði ekki gott af því að koma mér út úr húsi og hitta eitthvað fólk. Það var opnun í Kaktus og ég var að bræða það með mér fra...

Geggjuð blíða

Mynd
Marsipan súkkulaði á Smámunasafninu bjargaði mér. Veðurblíðan hérna fyrir norðan hefur verið hreint með ólíkindum. Samkvæmt spánni í gær átti nú samt að verða eitthvað lát á í dag, þ.e. ef maður telur 18-20°C hita ekki nóg. Hitinn fór samt upp í einhverjar 22°C þegar ég var að klára að vinna áðan. Ég hjólaði einhverja 10 km, í Byko, til skósmiðsins, á Glerártorg og loks niður í bæ. Ég var í skyrtu og buxum og var að stikna þegar ég kom heim. Djöfull elska ég þetta. Í gær var ennþá heitara, 26°C og nokkuð stíf sunnan átt. Ég ákvað að nýta veðurblíðuna og taka langan túr. Ég nennti varla að hjóla á móti vindinum fram í sveit, en vissi svo sem að það yrði alveg óskaplega skemmtilegt að fara til baka. Ég hjólaði suður að Smámunasafni en þegar ég var að verða kominn þangað var ég að verða bensínlaus. Ég var nýbúinn að éta eitt orkugel en hafði verið of seinn að koma því í mig og átti ekki gram af glýkógeni eftir í vöðvunum. En sem betur fer var ennþá opið á safninu og ég með visakortið á mé...

Meira hversdagslíf

Mynd
Úr hversdagslífinu. Lífið eftir sumarfrí hefur verið svona upp og ofan. Fyrsta vikan í vinnunni var óneitanlega mjög langdregin og erfið, en síðan fóru hlutirnir að gerast- og nú er reyndar allt komið í fullan gang. Ekki bara í fullan gang, heldur finnst mér eins ég sé búinn að missa yfirsýnina yfir verkefnin og þetta sé allt komið í skrúfuna. Í gær, og í dag er ég búinn að vera með kvíðahnút í maganum og mjög eirðarlaus. Ofan í þetta blandast áhyggur af einhverjum hlutum sem ég þarf að ganga frá í einkalífinu.  En ég er farinn að þekkja sjálfan mig það vel að ég veit að ég er að mála skrattann á vegginn. Þetta mun allt reddast og ég er að gera mitt besta. En ég næ samt bara ekki þessari sektarkennd, eirðarleysi og vanlíðan úr mér svo auðveldlega. Skrítið hvernig hausinn á okkur virkar. Það sem ég ætla núna að gera til að ná mér á réttan kjöl er að skrifa niður allt sem ég „þarf“ að gera og vinna mig hægt og rólega í gegnum listann. Nóg af væli. Börnin fóru til mömmu sinnar í gær o...

Ferðapælingar

Mynd
Ferðapælingar fyrir næsta sumar. Ég var nú ekki búinn að vera lengi niðri á flatlendinu eftir hálendisferðina þegar ég var lagstur aftur yfir www.map.is og farinn að skoða nýjar leiðir. Og ég er s.s kominn með ýmsar hugmyndir í sambandi við það. En ég er líka farinn að velta því fyrir mér hvort ég geti ekki farið með börnin til Danmerkur og Svíþjóðar að hjóla. Planið er nokkurnveginn svona: Vera í Kaupmannahöfn í 3 daga og hjóla svo með ströndinni upp til Helsingør, þar sem meðal annars má skoða Kronborg kastalann. Taka síðan ferjuna yfir til Svíþjóðar og hjóla til pabba og Hafrúnar í Lundi. Ég treysti Dagbjörtu Lóu ágætlega til að hjóla ca. 25 km á dag, og því gætu þetta verið 5 dagleiðir og svo mundu bætast við einhverjir hvíldardagar til að skoða sig um.  Þetta er náttúrulega heilmikið batterí en ég held að þetta sé vel þess virði og eitthvað sem þau munu muna alla ævi. Ég er búinn að ræða við þau að kannski gefi ég þeim þetta bara í jólagjöf og það er svo sem ekki margt sem okk...

Alltaf brekkur

Mynd
  Í "Skautasvellsbrekkunni". Við börnin fórum í berjamó í gær til að fylla á kistuna fyrir veturinn. Núna eigum við 14 fulla "zip-lock" poka í frosti til að nota á grautinn og í hræringa. Dagbjört vill reyndar líka gera bláberjasultu og ég er að spá í að láta það eftir henni. Ætli við gerum ekki 3-4 krukkur seinnipartinn í dag. Eftir berjaferðina í gær, sem að sjálfsögðu var hjólaferð, þá var ég alveg gjörsamlega búinn á því. Þetta var annar dagurinn í röð þar sem ég verð alveg bensínlaus eftir hádegið. Ég var þreyttur í líkamanum og sifjaður. Ég var farinn að hafa áhyggjur af því að ég væri að fá æfingaálag síðsutu 2 mánaða og hjólaferðina á hálendið í hausinn. En ég ákvað að gera mitt besta til að snúa þessu við. Át fulla skál af grænmetiskarrý með baunum og svo 2 skálar af bláberjum með rjóma í gærkvöldi. Fór síðan snemma í bælið, svaf eins og engill og þegar ég vaknaði í morgun át ég hafragraut með rjóma og bláberjum og slátur.  Þetta virðist hafa farið vel í mi...

Kíkið á Fjalla Bjarna 2021

Nú er ég búinn að klára 2 daga hérna um ferðina mína í sumar. Í valmyndinni hér að ofan er hægt að smella á Fjalla Bjarni 2021 og lesa sig í gegnum þetta. Ég ætlaði að hafa þetta stutt og skorinort en endaði í einhverri bölvaðri langloku. Þetta er langt frá því að vera skemmtilega skrifað og það liggur við að ég fari í gegnum þetta aftur, stytti þetta og fækki myndum. Ég tók mér frí í vinni í dag og við börnin ætlum að fara í berjamó. Það er víst allt fullt af blábjerum í Krossanesborgum og þangað er förinni heitið. Við eigum bara eftir að stoppa í Nettó og kaupa nesti og svo þarf ég að droppa við í vinnunni og skrifa einn tölvupóst. Ég búinn að spá svolítið mikið í hvernig trainer ég ætla að fá mér og valið stendur eiginlega á milli Wahoo Kickr og Wahoo Core. Ég sé í fljótu bragði ekki annað en að ég muni koma þessu fyrir í svefnherberginu mínu en það eina sem ég er stressaður með er að það myndist einhver víbringur og nágrannarnir eigi eftir að kvarta ef ég er að hjóla snemma á morgn...