Færslur

Golf

"Ég hef aldrei náð að mastera 9 holuna á Hlíðarendavelli". Svona tók ég til orða í dag þegar ég spilaði golf í góðum félagsskap. Svona hefði sennilega líka Snorri Sturluson orðað þetta hefði hann spilað golf við Jónas Hallgrímsson.

Messa

Fór í messu í dag Altarisganga Hörðustu fíklarnir stóðu á fætur og fengu sinn skammt af guði, beint í æð Gengu svo dofnir út í sumarið

Veiðtúr

Mynd
Fór að veiða urriða með félaga mínum í vinnunni í skóginum fyrir ofan Skagaströnd. Set hér inn mynd af félaganum með einn skásta fiskinn sem við fengum. Kveðja, Bjarni

Landsmót 50+

50-60ára 60-70ára 70-80ára Látnir
Afhverju er ég alltaf á þessum hlaupum? Ég held það sé vegna þess að ég get það. Ég hef ekki komist nær því að skilja þetta. Svo bara fer maður smám saman lengra og lengra án þess að vita hvar endamarkið er. Fór út í Varmahlíð í gær, stillti á krúsið og yfirgaf líkamann. Merkilegt hvað maður lærir bæjarnöfnin mikið betur þegar maður er á 12 km/klst en ekki 110 km/klst. Ég held að eftir því sem maður kemst í betra form og eftir því sem maður lifir heilbrigðara lífi fari líkaminn að láta mann betur vita hvað mann vantar. Þetta er eins og frumbyggjar sem éta rætur eða eitthvað álíka eða konur sem eru óléttar og sleikja húsgögn. Fólk finnur bara að eitthvað vantar, salt, sykur etc. Fór áðan út í búð og fann að ég þurfti svið. Þegar ég stóð svo við kassann fann ég að ég þurfti líka Trópí. Hljóp til baka og náði í eina flösku. Magnað. Kveðja, Bjarni

Ferðasaga VIII

Mynd
15.06.2011 Frídagur á ráðstefnu. Vaknaði kl.07:00 og Jens keyrði mig á Green Gables golf course. Þetta er flottasti völlur sem ég hef spilað á æfinni. Spilaði betur en í gær, sá ref en hann lét mig í friði. Fórum heim, hlaupið, kíkt aðeins í búðir og svo farið og étið á Pilot. Sveitt svínarif, kræklingur og ostrur. Nú eru næstu 2 dagar á ráðstefnunni helgaðir mínum fræðum og því verður ekki meira golfað. Reiknum með að keyra niður til Halifax seinnipartinn á föstudag. Kveðja, Bjarni

Ferðasaga VII

Mynd
14.06.2011 Vaknaði eldsnemma til að koma inn hring af golfi fyrir ráðstefnusetu dagsins. Fór á völl sem heitir Fox Meadow og er hérna við bæjarmörkin. Spilaði því miður ekki nógu vel en lenti samt í frekar sérstakri lífsreynslu. Þegar ég var á 15 holu, sem er par 3, kemur rauðrefur skokkandi inn á flötina þegar ég er að fara að slá. Ég leyfði honum að komast út af flötinni en lét svo vaða. Höggið var frekar lágt með sveig til vinstri og stefndi beint á refinn. Kúlan hafnaði rétt við refinn og skaust svo í átt að holunni. Fullkomið högg og ég gat ekki betur séð en að kúlan færi alveg upp að holu. Þá stekkur kvikindið af stað, eltir boltann á fullu og nær honum við holuna. Skokkar svo rólega í áttina til mín með boltann í kjaftinum og þegar hann átti ca. 10 metra eftir að mér fékk hann sér að skíta í makindum og stökk svo inn í skóg með kúluna í kjaftinum? Þessi völlur, sem var snilld, ber því nafn með rentu. Fór síðan á ráðstefnu og hef svo sem engar skemmtifréttir að færa þaðan. Klárað...