Græjur
Hjóladót
Hraðamælir - Garmin GCS10
Eins og sést fyrir neðan á síðunni, þá er úrið mitt (Garmin FR60) ekki GPS úr. Það þýðir að maður þarf smá aukabúnað til að geta notað úrið við hjólið. Þessvegna fékk ég mér þessa græju sem mælir hraða, cadence (snúning pedala/mínútu) og að sjálfsögðu vegalengd. Það fyrsta sem maður gerir er að setja skynjarann á það sem á ensku er kallað chainstay, keðjustag? Þ.e á kjálkann við afturdekk, þó ekki keðjumegin. Draslið fest á með dragböndum.
Næst skrúfar maður lítinn segul á teinana og endar á því að setja svipaðan segul á "pedala-arminn". Síðarnefndi segullinn er límdur og festur með dragbandi (ekki mynd af honum). Þegar maður hjólar fer teinsegullinn framhjá og skynjarinn mælir hversu marga hringi dekkið fer, og segullinn á pedalanum fer einnig framhjá. Mjög einfalt.
Síðan er bara að biðja úrið um að tengjast græjunni og það gerðist nú bara sjálfkrafa. Still inn dekkjastærðina og fara út að hóla. Græjan er mjög nákvæm og örugglega nákvæmari en GPS, svona upp á fjarlægðina allavega. Það sem þetta hefur umfram það að nota GPS úr, er að maður fær hraðann á fótstiginu (hringi á mínútu) og það getur skipt verulegu máli við æfingar. Þegar maður hjólar svo lætur maður úrið rótera upplýsingum, hraði, púls, km, tími og svo framvegis (sjá mynd fyrir ofan).
Þetta er flott græja og virkar eins og til er ætlast. Auðvitað er ókostur að vera með marga aukahluti, t.d þessi segla, en það er ekkert við því að gera ef maður vill fá cadence. Það sem ég hef saknað þegar ég hef verið að hjóla, sérstaklega upp í fjöll, er að hafa ekki hæðarmæli, en það er úrinu að kenna en ekki þessari græju.
Keypt: Boston
Verð á Íslandi: ca. 10.000 kall
Kostir: Þægilegt í notkun, uppsetning auðveld og virkar vel
Ókostir: Of margir aukahlutir á hjólinu
Einkunn: 4 af 5
--------------------------------------------------------------------------------------------
Sunddót
Sundfit
1) Úrið sjálft
2) ANT - usb stick fyir þráðlausan gagnaflutning
3) Food Pod (á skóinn)
4) Hjartsláttarskynjari og batterí
5) Hjartsláttaról
Í notkun er úrið frekar einfalt og í raun ótrúlega nákvæmt. Það er ekkert sem segir að þessi úr þurfi að vera ónákvæmari en GPS mælingar varðandi vegalengd. Ég ætla að hlaupa mjög gróflega yfir hvernig maður byrjar og hvernig þetta virkar.
1) Stofna aðgang á Garmin síðunni
2) Hlaða niður forritum fyrir þráðlaus gagnaskipti
3) Láta úrið para sig við skrefmæli og púlsmæli
4) Stilla/calibrera úrið á íþróttavelli eða hlaupabretti
5) Fara út að æfa
Þar sem úrið er ekki með GPS þá er það mjög nett eins og ekki þarf að bíða eftir samband við gerfihnattartungl. Maður einfaldlega ýtir á einn takka, bíður eftir að úrið hafi tengst skrefmæli (sem er á skó) og hjartsláttarmæli (sem maður hefur um brjóstið) og svo hleypur maður af stað. Skrefmælirinn gerir það líka að verkum að maður getur tekið æfingu á hlaupabretti en það virkar að sjálfsögðu ekki með GPS úri (nema maður kaupi Food pod við það). Úrið getur geymt um 20 klst af æfingum og í því eru ýmsir valmöguleikar varðandi sprettæfingar og fleira sem ég hef svo sem ekki séð ástæðu til að nota. Einn stærsti kosturinn er að batteríið endist í ca. 1 ár og því þarf ekki að vera að hlaða það endalaust. Þegar heim er komið stingur maður USB ANT+ í samband við tölvuna og æfingin hleðst sjálfkrafa inn, þráðlaust. Inn á garmin.com má svo sjá ýmsar upplýsingar, setja sér markmið, setja inn þyngd og fleira og fleira. Hér fyrir neðan má sjá smá sýnishorn hvernig þetta lítur út.
Hlaupavesti
Verð: 5900 kr. (að mig minnir)
Kostir: Létt, þægilegt og sést mjög vel í myrkri. Ágætis vindvörn
Ókostir: Lýsist með tímanum og efnið "harðnar" örlítið.
Einkunn: 4 af 5
-----------------------------------------------------
Annar búnaður
Drykkjarbelti
Þeir sem ætla að fara að hlaupa langar vegalengdir þurfa að huga að því að fá vökva á leiðinni. Það er ekki ráðlegt að fara mikið yfir 10 km án þess að komast í vökva og einnig getur verið gott að hafa einhverja orku líka. Beltið er létt og úr neoprene og með vasa sem í rúmast farsími, kredikort, lyklar eða annað smádót. Ég hef svo sem ekki neinn samanburð í þessum málum, en beltið er mjög þægilegt og truflar mann ekkert við hlaupin. Ég hef velt því fyrir mér hvort maður geti ekki líka gripið þetta með í rjúpu og fjallgöngur. Beltið var keypt í Afreksvörum en einhverrahluta vegna eru þeir, allavega samkvæmt heimasíðu, hættir selja það og komnir með eitthvað annað merki.
Keypt: Afreksvörur
Verð: 4900 kr. (að mig minnir)
Kostir: Létt, þægilegt, vasi
Ókostir: Plaslykt úr brúsum lengi að fara
Einkunn: 4 af 5
------------------------------------------------
Hlaupaskór
Ætli það geti ekki flestir verið sammála um það, að góðir hlaupaskór eru mikilvægasta fjárfestingin þegar kemur að hlaupum. Maður kemst reyndar fljótlega að því að allur þessi búnaður í kringum hlaupin -sem manni finnst svo ógeðslegur þegar maður er að byrja að hlaupa- er ekki bara hannaður til að vera ógeðslegur. Þarna er ég að tala um spandexbuxur, hlaupajakka, ljótar húfur og brúsabelti. Þetta er allt frábært dót til síns brúks. En hlaupaskórnir eru möst.
Ég renndi blint í sjóinn með þetta í upphafi og byrjaði að hlaupa á Asics GT2130 sem eru innanfótastyrktir og reyndar voru þeir allt of litlir á mig. Seinna kom í ljós, þegar ég fór í hlaupagreiningu hjá Afreksvörum í Glæsibæ að ég þurfti ekkert neinar styrkingar og lét skóna því róa eftir 470 km. Síðan fór ég á stúfana eftir nýjum skóm.
New Balance 1080
Keypti þessa skó í Afreksvörum og þá fær maður ókeypis hlaupagreiningu í kaupætið sem er bónus. Ég er með breiðan fót og þurfti því 42,5 til að fá hæfilega breydd fyrir tærnar. Þessir skór eru léttir og þægilegir og henta þeim sem þurfa ekki styrkingar. Þeir reyndar særðu mig fyrst aðeins utaná annari stóru tánni en það varð aldrei til vandræða. Sólinn er orðinn nokkuð slitinn eftir 450km hlaup en við skulum spyrja að leikslokum. Hefði viljað ná þeim upp í ca. 800 km þar sem ég er ekki skóböðull.
Keyptir: Afreksvörur
Verð: 23.000 kr. með hlaupagreiningu
Kostir: Léttir, ódýrari en Asics Nimbus, dempun fín og reimar góðar. Fá plús fyrir þjónustu í Afreksvörum.
Gallar: Ekkert sérstakt nema þeir henta frekar fólki með langan mjóan fót.
Einkunn: Segjum 4 af 5
Asics Gel Nimbus
Keypti þessa gegnum USA á HolbirdSports en þar þarf maður reyndar USA kredikort til að geta verslað og fá einhvern til að koma með þá fyrir sig. Ég þurfti ekki að greiða nema 11.000 kr. íslenskar fyrir þessa skó sem er fáránlega ódýrt. Á sama tíma kostuðu þeir 29.000 kr. á Íslandi. Þessir eru breiðari en NB og ég tók þá í 42EUR. Þeir henta fólki með breiðari löpp og ég er eiginlega ennþá að melta þá. Dempunin er rosalega mikil og þeir henta því t.d ágætlega fyrir lengri hlaup á stlitlagi eða steypu. Sést ekki á sólanum eftir 270 km.
Keyptir: USA
Verð: 11.000 ISK
Kostir: Léttir, sterkir, mikil dempun. Útlit
Gallar: Var nánast of laus fram í tánum, erfitt að gera manni til geðs.
Einkunn: 4 af 5
Hraðamælir - Garmin GCS10
Skynjari fyrir segul á tein og pedala |
Segull á teinum |
Úrið komið á stýrið. |
Hér sést staðsetningin betur |
Keypt: Boston
Verð á Íslandi: ca. 10.000 kall
Kostir: Þægilegt í notkun, uppsetning auðveld og virkar vel
Ókostir: Of margir aukahlutir á hjólinu
Einkunn: 4 af 5
--------------------------------------------------------------------------------------------
Sunddót
Sundfit
TYR Burner
Ef ég ætla mér einhverntíman að keppa í þríþraut, þá verð ég víst að geta synt skriðsund. Tyr Burner eru fljótandi sundfit með stuttu blaði sem m.a er ætlað að styrkja á manni lappirnar. Styttra blað gerir það líka að verkum að takturinn í fótatökunum er líkara því sem gerist þegar maður syndir án sundfita. Auk þess hjálpar flotið manni við að halda láréttri stöðu í vatninu og þannig minnka mótstöðu sem annars hægir á manni. Ég keypti þau í Aquasport í Bæjarlind í Kópavogi. Ég endaði á að kaupa mér stærð M sem samsvarar 40-42 og þau passa fínt. Við fyrstu notkun fékk ég smá nuddsár á eina tá og fékk smá rauða rönd á ristina. Síðan þá hafa þau ekki truflað mig neitt og gera það að verkum að ég nenni að fara og synda reglulega.
Keypt: Aquasport
Verð: 5200 ISK
Kostir: Létt og þægileg. Gera mér kleift að synda skriðsund sem ég annars get ekki svo vel
Ókostir: Ekkert
Einkunn: 4 af 5 - Full house
--------------------------------------------------
Hlaupaúr
Garmin FR60Hlaupaúr
Garmin FR60
Jæja þá er komið að æfingafélaganum mínum. Þetta er úr sem mælir vegalengdir, púls og einnig er hægt að nota það á hjól, að því gefnu að maður kaupi til þess sérstakan skynjara til að setja á teinana. Guðrún gaf mér það í jólagjöf árið 2011 og þetta er aðalástæða þess að ég hef endst í þessum hlaupum. Þegar heim er komið hleður maður æfingunum inn í tölvuna og getur rennt yfir helstu staðreyndir, hraða, púls og skrefafjölda (run cadence). Úrið er ekki með GPS og því ekki hægt að sjá leiðina korti. En það eru aðrir kostir sem úrið hefur í staðinn umfram stærri GPS úr. En við skulum kíkja í pakkann.
Gamin FR60 og fylgihluti
Með úrinu eru nokkrir fylgihlutir sem sjá má á myndinni hér að ofan:1) Úrið sjálft
2) ANT - usb stick fyir þráðlausan gagnaflutning
3) Food Pod (á skóinn)
4) Hjartsláttarskynjari og batterí
5) Hjartsláttaról
Í notkun er úrið frekar einfalt og í raun ótrúlega nákvæmt. Það er ekkert sem segir að þessi úr þurfi að vera ónákvæmari en GPS mælingar varðandi vegalengd. Ég ætla að hlaupa mjög gróflega yfir hvernig maður byrjar og hvernig þetta virkar.
1) Stofna aðgang á Garmin síðunni
2) Hlaða niður forritum fyrir þráðlaus gagnaskipti
3) Láta úrið para sig við skrefmæli og púlsmæli
4) Stilla/calibrera úrið á íþróttavelli eða hlaupabretti
5) Fara út að æfa
Foot Podinn er nettur og truflar mann ekki við hlaupin
Þar sem úrið er ekki með GPS þá er það mjög nett eins og ekki þarf að bíða eftir samband við gerfihnattartungl. Maður einfaldlega ýtir á einn takka, bíður eftir að úrið hafi tengst skrefmæli (sem er á skó) og hjartsláttarmæli (sem maður hefur um brjóstið) og svo hleypur maður af stað. Skrefmælirinn gerir það líka að verkum að maður getur tekið æfingu á hlaupabretti en það virkar að sjálfsögðu ekki með GPS úri (nema maður kaupi Food pod við það). Úrið getur geymt um 20 klst af æfingum og í því eru ýmsir valmöguleikar varðandi sprettæfingar og fleira sem ég hef svo sem ekki séð ástæðu til að nota. Einn stærsti kosturinn er að batteríið endist í ca. 1 ár og því þarf ekki að vera að hlaða það endalaust. Þegar heim er komið stingur maður USB ANT+ í samband við tölvuna og æfingin hleðst sjálfkrafa inn, þráðlaust. Inn á garmin.com má svo sjá ýmsar upplýsingar, setja sér markmið, setja inn þyngd og fleira og fleira. Hér fyrir neðan má sjá smá sýnishorn hvernig þetta lítur út.
Screenshot af Garmin síðunni
Keypt: Garmin búðin
Verð: 35.000 ISK
Kostir: Létt, batterí endist í eitt ár, vatnshelt niður á 50 metra, lítur út eins og venjulegt úr og virkar sem slíkt, mjög nákvæmt eftir að það er stillt, virkar inni og úti og tengist við ANT+ vogir og þrektæki. Virkar í skógi og stórborgum þar sem GPS virkar ekki
Gallar: Ekki með GPS, er ekki með hæðarmæli en kostar samt nokkuð mikið miðað við það. Hef einstaka sinnum lent í að þráðlaus samskipti við tölvu séu treg.
Einkunn: 4 af 5
Einkunn: 4 af 5
-----------------------------------------------
Fatnaður
Hlaupavesti frá Craft
Það er nauðsynlegt að sjást vel ef maður er að hlaupa úti á þjóðvegunum. Guðrún keypti þetta vesti á sjálfa sig en ég stal því fljótlega og hef notað það mikið. Vestið er mjög létt og bakið er úr þunnu neti. Þrátt fyrir það ver það mann nokkuð vel fyrir vindi og rigningu og ég nota það mjög gjarnan bara við langerma "thermo" boli. Vestið er keypt í Þreksport á Sauðárkróki en þeir eru með Craft vörur rétt eins og Danni í Afreksvörum. Helsti gallinn við það er að það lýsist með tímanum en ég hef líka þvegið það eftir hvert hlaup og því hefur það örugglega farið 150 sinnum í gegnum þvottavél.
Keypt: ÞreksportVerð: 5900 kr. (að mig minnir)