Ígulker


Svo maður haldi nú áfram þessu matarhjali þá var ég að éta ígulker í gær. Já eða lét mér nægja að éta bara hrognin eins og á víst að gera. Vorum að stíma heim úr grásleppuleiðangri og vorum að sigla inn Steingrímsfjörð á Ströndum. Skárum ígulkerin í tvennt og löptum úr þeim appelsínugul hrognin. Þetta fór ótrúlega vel með útsýninu.

Annars er ég svo þreyttur núna að ég nenni ekki að tala um hvað ég hef meira verið að gera.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Tour de France 101