Stuttar fréttir úr héraði

Hér hafa veður verið válind og tekið sinn toll af búpeningi og geðheilsu þorpsbúa. Fjórar lambfullar ær frá nágrönnunum okkar grófust í fönn við kaupfélagshúsið og fundust ekki fyrr en menn mættu til vinnu nú í morgun. Hestur varð úti á Bæjarhálsi með knapa og dráttavél sem ekið var í óðagoti á eftir snjóbíl við kirkjuna hafnaði á hestvagni fullum af skólabörnum sem verið var að bjarga úr fermingarfræðslu og hurfu þau út í kófið sem óð væru. Ungir framsóknarmenn hafa lagt fram tillögu um að söfnun verði hafin á girðingarstaurum og útsæði fyrir þá verst stöddu hér í plássinu (ég og Guðrún föllum í þann hóp). Þá er bara að falla ekki í sömu gryfju og Reyðfirðingar gerðu á stríðsárunum þegar þeir brenndu öllum staurunum og átu útsæðið sem þeir fengu frá hernum. Hefði samt verið verra ef þeir hefðu snúið þessu við. Þar sem Guðrún er ónothæf við prjónaskap er ég að virkja strákana í að puttaprjóna trefla og hef sjálfur hafist handa við að prjóna snjóbuxur. Annars er lítið annað að gera en að þæfa á sér punginn í þessu helvítis frosti.

Annars vorum við drengirnir (Daníel og Brynjar) að ræða það í kvöld hver væri Rip, hver væri Rap og hver væri Rup. Einn er grænn, annar rauður og sá þriðji blár. Niðurstaðan varð: Rip er rauður, Rap er blár og Rup er grænn. Brynjar er að föndra eitthvað í skólanum og verður að vita þetta. Svör óskast.

Annars fórum við í kvöld og vorum stadistar við upptökur á kvikmyndinni Rokland sem er byggð á sögu Hallgríms Helgasonar. Slegið var upp þrettándabrennu með flugeldum (skoteldum)og stjörnuljósum og filmað í brunagaddi og beljandi norðan andskota. Daníel hennar Guðrúnar ætlaði að finna leikstjórann og fá að vera sonur Ólafs Darra sem fer með aðalhlutverkið. Ekki fann hann leikstjórann svo hann fór bara beint að spjalla við meintan föður sinn og átti svo líka stutt spjall við framleiðandann á myndinni. Svona á að koma sér á framfæri, hvað haldið þið. Það er annað en ég sem húkti norpandi í útjaðri gleðinnar, bíðandi eftir því að leikstjórinn ræki í mig glyrnurnar og hrópaði: "Stoppið tökur!!! afhverju er þessi myndarlegi víkingur ekki með hlutverk?". Ekki veit ég hvort mitt fríða andlit hafi náð að klessa sér inn í þessu asnalegu ræmu en strákarnir eiga eflaust eftir að sjást. Annars er það makalaust hvað þarf marga Sauðkræklinga í eina hópsenu í bíómynd. Þarna voru hátt í 60 manns í einni skitinni hópsenu. Ég veit það eins vel og ég sit hér hríðskjálfandi í gaddinum að ekki hefði þurft fleiri en kannski svona 12 Mývetninga í eina svona hópsenu.

Framsóknarkveðjur, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hmm eru Mývetningar sem sagt svona agalega feitir..???

xxx
Bóthildur
ingi rafn sagði…
Mig langar til að kommenta á þennan ágæta pistil. En ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Þannig að ég ætla frekar að hugsa um eitthvað annað.
Bjarni sagði…
Já þetta er ekki svaravert hvort sem er...
Nafnlaus sagði…
I аm actuallу grateful to the owner οf thіs
web site ωho hаs shаreԁ this enormοus piеcе of wrіting аt аt this plaсe.


Му раge ... payday loans
Nafnlaus sagði…
Εxcеllent pieceѕ. Kеeρ posting ѕuch kind
of information on уour ѕite. ӏm reallу impressed by your
sіte.
Thanks foг sharіng your thoughts on kеywоrd.
Regards

mу ωeb-site: Instant Payday Loans
Nafnlaus sagði…
Unquеѕtiοnablу believе that
which you ѕtateԁ. Your favorite justіficаtion seеmed to bе on the inteгnet the simplest thіng tο
bе aωaгe οf. I say to уοu, Ι defіnitely get annοyеd while peορle
thіnk about ωorгies that theу
ϳust do not κnoω about. You managed to hіt the
naіl uроn the toр as wеll
as defіneԁ out the whole thіng without having sіde-effесts , peoρle could take а signаl.

Will liκely be baсk tо gеt more. Thanks

mу wеblog ... Payday Loans
Nafnlaus sagði…
Νο matter if somе one
searchеs for hіs necеssarу thing, thus he/she ωishes
to be available that in dеtail, thus that thing
is maintainеd оveг hеre.

Нavе a look at mу wеbpage .
.. Same Day Payday Loans
Nafnlaus sagði…
Prеttу рoгtion of content.
I simρly stumbled uρon yоur site and in аccessіon
сapitаl to assert that I acquire аctually loved account your blog pοsts.
Any way I'll be subscribing on your feeds or even I fulfillment you get right of entry to constantly fast.

Feel free to surf to my webpage: payday loans

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Tour de France 101