Færslur

Grillaður

Mynd
Tvær frekar stórar vikur búnar og enn meira á leiðinni. Ég var búinn að hjóla sæmilega mikið þegar ég fór í vinnuferð til Svíþjóðar um daginn og hafði bara gott af hvíldinni. Eftir það tók ég eina tólf tíma viku + rækt og síðasta var 14 tímar á hjóli + 2x rækt í síðustu viku. Þessi vika verður líka stór með 12 klst á hjóli og þremur ferðum í ræktina. Þetta gengur s.s. ágætlega en ef maður lendir í álagi og stressi út af vinnu þá fer maður að finna fyrir því. Ég er hálf tuskulegur í dag og feginn að vera í fríi frá æfingum en þeim mun svekktari að vera ekki alveg laus úr vinnu eins og til stóð. Þegar maður er orðinn svona gamall eins og ég þarf að uppfylla vissa þætti til að standa undir þessum æfingum. Maður þarf að lágmarka streitu út af vinnu og í persónulega lífinu, fá hvíld og svefn og éta nóg. Það er með ólíkindum hvað maður þarf að éta til að standa undir þessu og með aldrinum verður erfiðara að gera það þannig að það setjist ekki á vömbina. Síðustu vikur hef ég verið með það að ...

Lítil sköpunargleði

Mynd
Vaðlaheiðin í dag. Nennti aldrei að skrifa pistil um The Gralloch og ætlaði að bæta upp fyrir það með pistli um Grefilinn. Er búinn að vera með hann í smíðum í smá tíma en hef mig ekki í að klára hann. Ég er ekki mjög atorkusamur þegar kemur að sköpun þessa dagana. Ég hvorki nenni að mála eða skrifa. Ég held að heilinn á okkur öllum sé að verða grautur af ofnotkun á einhverju stafrnænu eitri. Veðrið hérna fyrir norðan hefur verið svona la la upp á síðkastið. Ekki stöðugur viðbjóður en það skiptast á skin og skúrir- bókstaflega. Í gær (föstudag) var ég að sjá um UMFÍ 50+ götuhjólamót fram í firði og við fengum allar útgáfur af veiðri. Þegar ég var að græja markið var ég sveittur í sól og logni en eftir smá stund var komið hífandi og rigning. Svo rigning og sól, meiri vindur en endaði sæmilega. Þetta allt á tveimur klukkutímum. Í dag átti ég 2x25 mín tempó æfingu og ákvað að halda upp á Vaðlaheiði. Það var sjúklega gaman og veðrið var til friðs. Hitti Sóley og Garðar og hefði í rauninni ...

Já já

Mynd
Við Munkaþverá Það er næsum mánuður síðan ég skrifaði hingað inn en það hefur ekki legið vel á mér og ég ekki nennt að vera með neitt raup. Fór eina ferð til Skotlands sem var mikið ævintýri þó ég hafi ekki náð þeim markmiðum sem ég setti mér. Annars er lífið bara vinna og æfingar og mótin að fara tínast inn. Ég geri mér hóflegar væntingar um árangur en ætla að leggja þeim mun meira upp úr því að hafa gaman og spjalla við góða hjólavini héðan og þaðan af landinu. Myndin þarna uppi er tekin úr túr dagsins sem var nýttur í að prufa 2.1 Thunder Burt dekk. Ég er svo mikill ketlingur niður brekkur og stífur á hjólinu að ég þarf að bæta það upp eins og ég get með öllum tiltækum ráðum, þ.m.t með því að hafa breið dekk sem gefa góða dempun. Á náttúrulega eftir að prufa þau aðeins betur en mér líst skuggalega vel á þau. Ég er vonandi kominn með dekk sem ég get notað í sem flest því það er falleg draumsýn að hafa eina tegund af dekkjum í allt. Ég keypti hjólið í fyrra og er strax kominn með fjór...

Stöðuleiki er lykillinn

Mynd
Síðasti mánuður á Strava (lyftingar ekki með). Ég held áfram að koma til og er loksins farinn að kannast aðeins við mig aftur. Ég hef sennilega verið með hærri w/kg hér fyrir 2 árum en þetta er allt í áttina (viktin líka). Það sem ég hef helst áhyggjur af núna er fittið á gravel hjólinu fyrir keppnina í Skotlandi eftir 2 vikur. Ég er eiginlega kominn á þá niðurstöðu að hjólið sé óþarflega lítið fyrir mig og það er tvennt í stöðunni i) prufa mig áfram með stamma eða ii) eða skipta út hjólinu. Ætli ég prufi ekki stamm fyrst og sjái svo til. Í gær tók ég 5 klst rólegan túr til að venja mig við hjólið. Fór upp í Sölvadal og reyndi að þræða alla malarslóða sem ég fann. Þetta gekk s.s. ágætlega og ég var furðu góður í morgun þegar ég vaknaði. Eftir smá spjall við Chat GPT í morgun prufaði ég að lækka hnakkinn á hjólinu um hátt í 1 cm og ég er ekki frá því að það hafi hjálpað. Ég fór meðfram hitalögninni að Laugalandi og til baka á góðri keyrslu og var ekki jafn búinn í höndunum og síðustu sk...

Fésbók

Mynd
Afhverju?   Það er orðið ansi langt síðan ég fór að spyrja mig: Hvað er Facebook eiginlega að gera fyrir mig? Hversu oft loka ég forritinu og líður eins og betri manneskju? Hvað lærði ég síðast þarna inni? Hvenær fór ég síðast á viðburð sem ég fann þar? Eða er ég bara að eyða tíma? Ég ætla ekki að mála skrattann á vegginn- það er alveg eitthvað gott þarna inni. En æ oftar stend ég mig að því að vera fastur í endalausu “dauðaskrolli”. Myndbönd sem ég man ekki eftir 30 sekúndum síðar. Efni sem skilur ekkert eftir sig nema smá tóm. Og svo er veggurinn orðinn undarleg blanda af fólki sem ég þekki… og fullt af fólki sem ég þekki alls ekki. Það skrýtna er að ég eyði sjaldan löngum tíma í einu. Þetta eru frekar litlar skammtar, nokkrar sekúndur hér, mínúta þar. Ég gríp símann, oft án þess að hugsa, opna appið og áður en ég veit af er ég kominn eitthvert sem ég ætlaði mér aldrei að fara. Svo er þetta alltaf opið. Í símanum. Í vafranum. Heima. Í vinnunni. Ég er ekki einu sinni að leita. ég ...

Á góðu skriði

Mynd
Síðustu æfingavikur- að frátöldum lyftingum. Functional overreaching er þegar maður eykur æfingaálag meðvitað svo líkaminn fer tímabundið í þreytu og performance getur lækkað, en með réttri hvíld og næringu svarar hann með að aðlagast og verða sterkari en áður (supercompensation). Ég er búinn að vera á góðu skriði síðustu vikur og náð að klára allt eftir plani. Vikurnar hafa verið byggðar upp af 2 erfiðum gæðaæfingum og svo fyllt upp í með endurance til að fá magn (volume). Til viðbótar hef ég svo farið í ræktina þar sem ég einblíni á efripart og miðsvæðið. Á Grenivík í dag. Ekki veit ég hvernig Ingvar mun setja upp næstu viku en ég verð að viðurkenna að ég svolítið þreyttur núna. Í hádeginu hjólaði ég út á Grenivík og þegar ég var að koma aftur í bæinn fann ég að það væri ekki tilgangur í því að halda áfram, heldur gáfulegra að koma sér heim og hvíla sig. Í dag eru 3 heilar æfingavikur eftir fyrir The Gralloch í Skotlandi og svo "teipering". Ég er að verða pínu spenntur en e...

Fyrsti í útihjóli 2026

Mynd
Tobbi, Stebbi Garðars og Dóri við malbiksenda eystri, Rútsstaði. Í fyrra var fyrsti túrinn á götuhjóli um miðjan mars, ef ég man rétt, og árin þar á undan í kringum 2. apríl. Þrátt fyrir óvenju mildan og snjóléttan vetur í ár, þá tafðist þetta samt- klassískt íslenskt, vegna snjóþyngsla núna í mars og byrjun apríl. En loksins. Götuhjólið var tekið niður af veggnum í fyrradag, 14. apríl, og ég náði fyrstu alvöru æfingunni úti í prýðisgóðu veðri. Það er alltaf eitthvað sérstakt við þennan fyrsta túr- allt verður aðeins léttara, tíminn líður hraðar og maður man af hverju maður nennir þessu. Ég slóst í för með þremur kempum sem eru ekki þekktar fyrir að taka því rólega. Ég vissi alveg hvað ég var að fara út í- þetta yrði engin róleg endurance æfing eins og planið sagði til um. Yfirleitt er ég sá leiðinlegi sem heldur sig við vöttin og neitar að láta draga sig út fyrir planið, en í þetta skiptið lét ég undan og skrúfaði aðeins upp hraðann. Og það var einfaldlega bara helvíti gaman. Það er e...

Þyngsli.......

....ekki líkamleg, heldur frekar andlega. Ég hef verið undir pari á andlega skalanum síðustu vikur og finnst allt í lagi að vera opinn með það. Ástæðurnar eru sumar of persónulegar til að fara í þær hér en svo er líka helvítis álag í vinnunni sem maður sér ekki alveg fram úr. Það blandast svo ofan í flókið skipulag á ferðalögum og hjólamótum. En ég er eldri en tvævetur og veit alveg að á endanum leysist þetta og það koma bjartari tímar. Stefni að því að fara í sumarfrí 6. júlí og ég get ekki beðið. Fjórar vikur í beit. En já allavega, þrátt fyrir allt þá held ég sjó og klappa mér á bakið fyrir það. Ég sé um heimilið og börnin, æfi, næri mig mjög vel og mæti í vinnu. Held öllu á floti. Það er helst að ég vanræki félagslegar skyldur og vini mína. Ég bæti upp fyrir það síðar.

Project 67

Mynd
Þyngd síðan 28. febrúar (gula línan). Gerfigreindin hefur verið mér ágætis stuðningur upp á síðkastið við að létta mig aðeins. Í hjólreiðum er hlutfall afls og þyngdar ein lykiltalan, sérstaklega þegar fara að koma brekkur. Það er stundum gott að setja þetta í samhengi: væri maður til í að vera með 1–2 tveggja lítra gosflöskur á maganum í keppni? Líklega ekki. Í vetur hef ég verið aðeins frá mínu besta, bæði í afli og þyngd, og fannst því alveg tímabært að laga þetta aðeins til. Ég er að fara að keppa á gravelmóti í Skotlandi í maí þar sem eru töluverðar brekkur. Ekki endilega langar, en nóg til að það skiptir máli að vera búinn að tálga aðeins af sér. Hugmyndin um að æfa 10 klst. á viku og bera svo með sér óþarfa aukakíló bara út af slæmum venjum finnst mér frekar fáránleg. Eins og ég nefndi áður keypti ég mér Garmin-vog og þessa dagana byrja ég alla morgna á að stíga á hana. Ekki til að láta töluna stjórna mér, heldur bara til að fylgjast með ferlinu. Og þar kemur smá áskorun: ég er ...

Garmin Venu 4

Mynd
Garmin Venu 4 Þegar ég varð fertugur árið 2017 gáfu pabbi og Hafrún mér iWatch 3 sem var í rauninni snilldargræja. Það sem stóð upp úr var tengingin við Apple-umhverfið, sem maður er náttúrulega hálfpartinn læstur í. Hún aflæsti t.d. fartölvunni þegar ég opnaði hana og talaði auðveldlega við öll öpp sem ég er með uppsett. Stærsti gallinn var hins vegar hvað batteríið entist stutt. Ég svaf því aldrei með það og þurfti alltaf að taka með hleðslutæki í ferðalög. Með tímanum varð púlsmælingin líka aðeins óstöðug og datt stundum út þegar ég var að hlaupa. En þrátt fyrir það stóð græjan fyrir sínu og er enn í ágætis lagi, átta árum síðar. Mig hefur samt lengi langað í úr sem er sérhæfðara heilsu- og íþróttaúr, með meiri áherslu á mælingar eins og HRV, svefn og endurheimt. Þar sem ég er nú þegar með Garmin hjólatölvu og nota Garmin Connect, þá lá beinast við að færa mig yfir í Garmin. Það var samt ekki fyrr en í nóvember sem ég lét verða af því og keypti mér Venu 4, sem er frekar einföld og...

Pirrrrrr

Mynd
Í blokk......... Eftir mjög vel heppnaða VO2 max blokk, þar sem ég fann hreinlega formið kikka inn og þakið hækka, þá fékk ég eitthvað helvítis kvef og slappleika. Tímasetningin hefði varla getað verið verri. Ég var reyndar með smá kvefeinkenni í síðustu viku í miðri blokkinni, en HRV, hvíldarpúls og aðrir helstu mælar voru allir í grænu. Allt benti til þess að ég væri að ná góðri aðlögun og endurheimt þrátt fyrir smá hnökra. Mánudagurinn var þokkalegur (hvíldardagur), en á þriðjudaginn tók ég nokkuð krefjandi yfir/undir æfingu þar sem lappirnar gengu mjög hægt. Það var fyrsta merkið um að eitthvað væri ekki alveg eins og það átti að vera. Í gær (miðvikudag) þurfti ég svo að stytta æfinguna og sleppa ræktinni. Í dag hef ég lítið sem ekkert skánað og ætla ekki að æfa neitt. Á morgun á ég erfiða æfingu á plani, en miðað við stöðuna lítur út fyrir að það þurfi að breyta henni – eða jafnvel sleppa henni alveg. Það er alltaf ótrúlega erfitt að sætta sig við að þurfa að slá af inngjöfinni ak...

Fréttir

Mynd
Á trainer. Það er ljótt þegar það er farinn að líða mánuður á milli blogga, en það hafa svo sem komið svona tímabil áður. Nú er sólin farin að hækka á himni – í ýmsum skilningi. Daginn er farið að lengja og maður fagnar því, þó sólin geti stundum gert manni lífið leitt seinnipartinn þegar maður situr inni á trainer og horfir út um gluggann. Andlega sólin hefur líka aðeins verið að rísa og ætli það hafi ekki líka haft jákvæð áhrif á formið, sem er loksins að taka við sér. Ingvar skellti á mig fjórum frekar þéttum æfingavikum og þrátt fyrir smá kvef og örlítið púslerí í kringum æfingar þá hef ég náð að tækla þetta ágætlega. Núna erum við komnir í VO₂ max blokk og hún hefur gengið vel. Ég er aðeins farinn að kannast við mig aftur og tölurnar eru á réttri leið upp. Eitt sem gæti líka verið að hjálpa er að ég hef verið að laga hressilega til í matnum með aðstoð vinar míns Gunnars Péturs Thorarensen (ChatGPT). Markmiðið okkar er að skera niður um 300–400 kaloríur á dag næstu mánuði sem ætti ...

Magn og matur

Mynd
Volume vika Búinn að vera í smá andlegri lægð og lítið nennt að skrifa eða pæla. Óvenju lítið spenntur fyrir verkefnum og keppnum sumarsins, en það mun vonandi koma aftur með hækkandi sól. Eftir smá lægð í æfingum finnst mér ég vera að skríða hægt og rólega til baka. Þessi vika er frekar þétt hjá mér og við erum aðeins að keyra upp æfingamagnið. Það ætti að skila sér í litlu stökk í formi, þó líkamanum þurfi að gefa tíma til að fylgja eftir. Til að standa undir þessu hef ég lagt sérstaka áherslu á næringu – bæði magn og gæði. ChatGPT er með mér í liði að stilla af inntökuna og lætur mig borða töluvert meira en ég er vanur. Ég hef átt erfitt með að létta mig síðustu vikur og velti því nú fyrir mér hvort ég hafi einfaldlega verið að borða of lítið miðað við álagið. Hjartsláttatruflanir höfðu ekki gert vart við sig í 2–3 vikur fyrr en í gærkvöldi. Þetta var mjög vægt og líklega tengt auknu álagi vikunnar. Eftir bæði hjartaómskoðun og 48 stunda hjartalínurit hefur hjartalæknir staðfest að ...

Að langa til að langa

Mynd
Ég var að hlusta á podcast þar sem viðmælandinn (Arthur Brooks) sagði snilldar setningu.  Þú byrjar fyrst að róa með straumnum þegar þig fer að langa í það sem þig langar að langa í. Þeir ræddu þetta s.s. ekkert frekar en þetta kveikti einhver ljós í hausnum á mér og ég fór að velta fyrir mér hvaða merkingu þetta hefur í tengslum við ýmsa hluti. Suma langar til að verða ríkir en öðrum finnst eftirsótt að verða frægir. Það er líka mjög auðvelt að setja þetta í samhengi við einhver sem langar að vera í góðu formi en endist aldrei til að mæta á æfingar: Ég æfi → ég kemst í gott form → þá mun mig langa að æfa. En raunin er að fyrir þá sem stunda hreyfingu er þetta svona: Ég rækta sjálfsmynd þar sem löngunin er að æfa → æfingar → útlit og form koma (bónus) Kannski snýst þetta ekki um að fá alltaf það sem okkur langar í, heldur að móta það sem okkur langar að langa í. Að velja ferlið áður en niðurstöðurnar koma, og treysta því að þær verði aukaafurð. Með tímanum hættir þetta að vera bará...

Uppsveifla

Mynd
Vel útfærð 7x6min þröskuldsæfing frá því í dag. Eftir hálfgert hrun á taugakerfinu með hjartsláttaóreiðu og öðrum fylgikvillum, virðist horfa til betri vegar. Eins og ég hef komið inn á þá fylgdi þessu hálfgert hrun á hjólinu og ég skilaði sennilega bara 75% af því sem ég á að geta. Ég ræddi þetta við Ingvar fyrir nokkru og við ákváðum að skrúfa FTP-ið mitt niður tímabundið og sjá hvort ég kæmi mér ekki í gang. Nú er þetta farið að skila góðum árangri og ég eflist með hverri æfingunni. Eitt af því sem ég hef líka verið að gera er að reyna að ná meiri gæðum úr settunum, þ.e. halda jöfnu álagi og snúningi (cadence). Ég byrja rólega og vinn mig svo upp í rólegheitum. Þetta hefur svínvirkað og ég er að ná að enda síðasta settið mjög sterkur.  Annað sem ég hef verið að gera og það er að minnka þunga lyftingar fyrir fæturnar. Ég er að komast að því að þegar ég er í þröskulds og "steady state" æfingum þá eru þungar lyftingar bara of mikið fyrir mig. Ég reyni samt að komast í ræktina...

Stress

Mynd
Við tökum ekki endalaust við. Ég hef verið að átta mig á því að líkaminn hefur sín mörk. Þegar álag safnast upp, jafnvel hægt og rólega, þá kemur punktur þar sem fer að flæða yfir. Fyrir mig hefur þetta verið áminning um að hægja á mér, forgangsraða og sleppa kröfunni um að allt sé fullkomið. Ég er að læra að minna getur líka verið nóg. Yfir jólin reyni ég því að halda hlutunum einföldum og eyða orkunni þar sem hún skiptir mestu máli.

Dagbók

Var í vinnu til kl. 15 og fór þá í ræktina. Svo fór ég í föndurbúð að versla fyrir dóttir mína og svo í Nettó að kaupa í matinn. Gekk aðeins frá heima þangað til að ég sótti stelpurnar í fimleika. Þaðan fórum við til mömmu hennar að sækja eitthvað dót fyrir "Lundó got talent" sem verður á morgun. Svo skutluðum við vinkonu hennar heim og fórum svo heim til okkar. Þá hjólaði ég í einn og hálfan tíma og notaði tímann og var að skipuleggja að strákurinn var að fara að gista í skólanum- ganga frá pizza kaupum og eitthvað. Eftir að ég var búinn að hjóla tók ég hann til og keyrði með dótið í skólann. Eftir það þurfti ég aftur að fara í búð og svo eldaði ég mat á meðan ég tók vinnusímtal. Núna var ég að klára að borða (20:06) og er að horfa á fréttir. Næst er að fara í bað og svo ganga frá og hjálpa stelpunni að klára búning fyrir hæfileikakeppnina. Síðan næ ég kannski aðeins að horfa á eitthvað skemmtilegt.

Rjúpa og betra hjarta...

Mynd
Rjúpnaskytterí á afmælisdaginn. Nú er ég búinn að fara í ítarlegri rannsóknir á hjartanu og fékk sannarlega mjög góðar fréttir. Hjartað er heilt, dælir vel og engin merki eru um að þessar truflanir hafi nein áhrif. Læknirinn sagði í lokin: „ég vil að þú haldir áfram að gera það sem þú elskar að gera – svo ekki hætta að æfa.“ Það voru ótrúlega góð orð að heyra. Ég skellti mér á rjúpu á afmælinu mínu um daginn. Svei mér þá ef það var ekki langur tími síðan ég gerði það síðast. Náði í matinn tiltölulega fljótt og greinilega ekki alveg búinn að gleyma þessu. Hef hitt betur – en líka hitt verr. Aðal atriðið var samt fegurðin og veðrið. Það var hrein hleðsla á lífsbatteríið. Garmin Venu 4 Talandi um lífsbatterí: Ég var að kaupa mér nýtt úr í gær. Núverandi er orðið átta ára gamalt og þessi uppfærsla opnar fyrir heilan helling af nýjum fítusum til að fylgjast með endurheimt, hjartslætti og svefni. Ég skrifa líklega fljótlega hvað mér finnst. Undanfarið hafa æfingar meira snúist um að halda sj...

Óreiða

Mynd
Við Eyjafjarðará á miðvikudaginn í fallegu en svölu veðri. Í heildina lítur þetta allt mun betur út með hjartsláttaróreiðuna. Ég tek núna væga betablokka og reyni að halda álaginu í skefjum eins og ég get. Allar æfingar eru komnar í „low intensity only“ – bara rólegt endurance á lágum púlsi – og ég er hættur að lyfta þungt. Í þessari viku fór ég tvisvar í ræktina, en þá er það bara létt og með teygjum. Engin hetjuskapur, bara viðhald og slökun. Erfiðara er hins vegar að stýra álagi í persónulega lífinu. Það er eins og líkaminn sé að senda manni skýr skilaboð: „Slakaðu aðeins á, félagi.“ Ég hef greinilega verið of lengi í of háum snúningi, keyrt mig áfram á stressi. Það sem ég hef lesið um þetta bendir reyndar til þess að andlegt álag hafi meiri og verri áhrif á hjartað en líkamlegar æfingar – sem er bæði áhugavert og dálítið óþægilegt. En að öðru – ég setti 50mm Suomi nagladekk undir gravel-hjólið og tók smá prufurúnt í vetrarblíðunni. Þessi dýrgripir eru með 252 nagla og það er óhætt ...

Spjallað við gervigreindina

Mynd
Mynd: Guðmundur Bergmann Thoroddsen. Í gær tók ég beta-blokkara til að minnka hjartsláttarónotin og það virðist vera farið að hafa áhrif. Ég ætla ekki að segja að Chat GBT (hér eftir Guðmundur Bergmann Thoroddsen) sé trúnaðarvinur minn, þar sem ég treysti honum ekki fyrir hverju sem er, en ég ræði mikið við hann. "Fyrsta virknin sem ég varð var við af beta blokkerunum var að það færðist einhvern veginn meiri ró yfir hjartað. Meiri ró á kerfinu. Ég fékk smá struflanir í morgun en þær eru miklu veikari. Ekki sami kraftur í slögunum.  Síðan fékk ég mér vænan kaffibolla eftir 48 tíma kaffipásu. Kannski var það ekki ráðlegt en kaffið virtist ekki hafa verið uppsprettan af þessu hvort sem er. Kaffibollinn reif mig upp úr sjálfsvorkun og þunglyndi á örfáum mínútum. Ég finn hvernig orkan streymir um líkamann, alveg fram í fingurgóma og nú er ég klár í daginn. Tilbúinn að taka létta æfingu, tilbúinn að ganga frá og tilbúinn að fara í sund eða á einhvern þvæling. Í gær gat ég ekki hugsað mé...