Færslur

Sýnir færslur frá apríl, 2026

Á góðu skriði

Mynd
Síðustu æfingavikur- að frátöldum lyftingum. Functional overreaching er þegar maður eykur æfingaálag meðvitað svo líkaminn fer tímabundið í þreytu og performance getur lækkað, en með réttri hvíld og næringu svarar hann með að aðlagast og verða sterkari en áður (supercompensation). Ég er búinn að vera á góðu skriði síðustu vikur og náð að klára allt eftir plani. Vikurnar hafa verið byggðar upp af 2 erfiðum gæðaæfingum og svo fyllt upp í með endurance til að fá magn (volume). Til viðbótar hef ég svo farið í ræktina þar sem ég einblíni á efripart og miðsvæðið. Á Grenivík í dag. Ekki veit ég hvernig Ingvar mun setja upp næstu viku en ég verð að viðurkenna að ég svolítið þreyttur núna. Í hádeginu hjólaði ég út á Grenivík og þegar ég var að koma aftur í bæinn fann ég að það væri ekki tilgangur í því að halda áfram, heldur gáfulegra að koma sér heim og hvíla sig. Í dag eru 3 heilar æfingavikur eftir fyrir The Gralloch í Skotlandi og svo "teipering". Ég er að verða pínu spenntur en e...

Fyrsti í útihjóli 2026

Mynd
Tobbi, Stebbi Garðars og Dóri við malbiksenda eystri, Rútsstaði. Í fyrra var fyrsti túrinn á götuhjóli um miðjan mars, ef ég man rétt, og árin þar á undan í kringum 2. apríl. Þrátt fyrir óvenju mildan og snjóléttan vetur í ár, þá tafðist þetta samt- klassískt íslenskt, vegna snjóþyngsla núna í mars og byrjun apríl. En loksins. Götuhjólið var tekið niður af veggnum í fyrradag, 14. apríl, og ég náði fyrstu alvöru æfingunni úti í prýðisgóðu veðri. Það er alltaf eitthvað sérstakt við þennan fyrsta túr- allt verður aðeins léttara, tíminn líður hraðar og maður man af hverju maður nennir þessu. Ég slóst í för með þremur kempum sem eru ekki þekktar fyrir að taka því rólega. Ég vissi alveg hvað ég var að fara út í- þetta yrði engin róleg endurance æfing eins og planið sagði til um. Yfirleitt er ég sá leiðinlegi sem heldur sig við vöttin og neitar að láta draga sig út fyrir planið, en í þetta skiptið lét ég undan og skrúfaði aðeins upp hraðann. Og það var einfaldlega bara helvíti gaman. Það er e...

Þyngsli.......

....ekki líkamleg, heldur frekar andlega. Ég hef verið undir pari á andlega skalanum síðustu vikur og finnst allt í lagi að vera opinn með það. Ástæðurnar eru sumar of persónulegar til að fara í þær hér en svo er líka helvítis álag í vinnunni sem maður sér ekki alveg fram úr. Það blandast svo ofan í flókið skipulag á ferðalögum og hjólamótum. En ég er eldri en tvævetur og veit alveg að á endanum leysist þetta og það koma bjartari tímar. Stefni að því að fara í sumarfrí 6. júlí og ég get ekki beðið. Fjórar vikur í beit. En já allavega, þrátt fyrir allt þá held ég sjó og klappa mér á bakið fyrir það. Ég sé um heimilið og börnin, æfi, næri mig mjög vel og mæti í vinnu. Held öllu á floti. Það er helst að ég vanræki félagslegar skyldur og vini mína. Ég bæti upp fyrir það síðar.

Project 67

Mynd
Þyngd síðan 28. febrúar (gula línan). Gerfigreindin hefur verið mér ágætis stuðningur upp á síðkastið við að létta mig aðeins. Í hjólreiðum er hlutfall afls og þyngdar ein lykiltalan, sérstaklega þegar fara að koma brekkur. Það er stundum gott að setja þetta í samhengi: væri maður til í að vera með 1–2 tveggja lítra gosflöskur á maganum í keppni? Líklega ekki. Í vetur hef ég verið aðeins frá mínu besta, bæði í afli og þyngd, og fannst því alveg tímabært að laga þetta aðeins til. Ég er að fara að keppa á gravelmóti í Skotlandi í maí þar sem eru töluverðar brekkur. Ekki endilega langar, en nóg til að það skiptir máli að vera búinn að tálga aðeins af sér. Hugmyndin um að æfa 10 klst. á viku og bera svo með sér óþarfa aukakíló bara út af slæmum venjum finnst mér frekar fáránleg. Eins og ég nefndi áður keypti ég mér Garmin-vog og þessa dagana byrja ég alla morgna á að stíga á hana. Ekki til að láta töluna stjórna mér, heldur bara til að fylgjast með ferlinu. Og þar kemur smá áskorun: ég er ...