Færslur

Sýnir færslur frá júlí, 2026

Grillaður

Mynd
Tvær frekar stórar vikur búnar og enn meira á leiðinni. Ég var búinn að hjóla sæmilega mikið þegar ég fór í vinnuferð til Svíþjóðar um daginn og hafði bara gott af hvíldinni. Eftir það tók ég eina tólf tíma viku + rækt og síðasta var 14 tímar á hjóli + 2x rækt í síðustu viku. Þessi vika verður líka stór með 12 klst á hjóli og þremur ferðum í ræktina. Þetta gengur s.s. ágætlega en ef maður lendir í álagi og stressi út af vinnu þá fer maður að finna fyrir því. Ég er hálf tuskulegur í dag og feginn að vera í fríi frá æfingum en þeim mun svekktari að vera ekki alveg laus úr vinnu eins og til stóð. Þegar maður er orðinn svona gamall eins og ég þarf að uppfylla vissa þætti til að standa undir þessum æfingum. Maður þarf að lágmarka streitu út af vinnu og í persónulega lífinu, fá hvíld og svefn og éta nóg. Það er með ólíkindum hvað maður þarf að éta til að standa undir þessu og með aldrinum verður erfiðara að gera það þannig að það setjist ekki á vömbina. Síðustu vikur hef ég verið með það að ...