Fjalla Bjarni 2021

Í Dreka að leggja upp á Dyngjusand og Flæður.

Hér langar mig að gera hálendisferð minni 2021 skil. Þegar ég og Þórður vorum að bisa við að "trakka" leiðina niður í GPS tækið, skírði Þórður leiðirnar Fjalla Bjarni- látum það því bara verða yfirskriftina á þessari ágætu ferð. Í stuttu máli, þá fór ég frá Akureyri austur yfir Vaðlaheiði, í Bárðardal, upp í Öskju og svo Gæsavatnaleið í Nýjadal. Þaðan í Laugafell og aftur heim. Þetta var því hringur. Það skipti mig máli að fara alla ferðina á hjólinu í stað þess að taka strætó eða láta keyra mig eitthvað. Ekki spyrja mig hvers vegna? Hér fyrir neðan má sjá skjóskot úr kortagrunninum og þar fyrir neðan er hver dagleið fyrir sig (smellið á hlekkina). Vonandi hefur einhver gaman af því að skoða þetta.

ATH! Ég notaði Apple úrið mitt og Strava til að trakka leiðirnar og hæðamælingar í úrinu hafa verið grunsamlegar upp á síðkastið. Þær gefa samt ágætis mynd af hækkunum þó metrar yfir sjávarmáli séu ekki í öllum tilfellum kórréttar.

Kort af leiðinni.

Akureyri - Sörlastaðir (51 km)

Sörlastaðir - Botni (70 km)

Botni - Dreki via Vikrafellsleið (65 km) (Í vinnslu)

Dreki - Kistufell (56 km) (Í vinnslu)

Kistufell - Nýidalur (73 km) (Í vinnslu)

Nýidalur - Laugafell (51 km) (Í vinnslu)

Laugafell - Akureyri (88 km) (Í vinnslu)



Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap