Góðan daginn öll


Vildi bara láta vita að ég er lífs en ekki liðinn og hef eytt meirihlutanum af þessari jólahátíð í góðu yfirlæti í Skagafirði. Þó ég hafi svo sem lítið annað gert en að hafa það gott, þá hef ég náð einum langrþáðum áfanga. Ég sá Sigfús Pétursson (Álftagerðisbróðir) syngja Ökuljóð á Þrettándagleði Karlakórsins Heimis. Nú get ég dáið sáttur, þvílíkur englasöngur. Síðan brugðum við Addi okkur í smá svartfuglstúr og var aflinn mjög hóflegur en fram úr hófi fjölbreyttur (fer ekki nánar út í það). Síðan má kannski líka nefna það að ég, Guðrún og strákarnir átum mjög svo óvenjulegan áramótamat. Í forrétt höfðum við Cocoa Puffs og í aðalrétt átum við brauð með smjöri og osti. Það var reyndar ástæða fyrir því að við ákváðum að gera svona vel við okkur og heitir hún rafmagnsleysi. Þetta var samt ljómandi rómantískt og mér hefur alltaf fundist Cocoa Puffs gott og ekki er nú brauðið mikið síðra.

Annars er ég í þessum töluðu orðum atvinnulaus. Eða ég ætti kannski frekar að segja atvinnufár eða atvinnu-ekki mikið að gera í dag eða á morgun. Samningar mínir við Matís eru útrunnir og því er ég farinn að leita mér að verkefnum í samstarfi við fleiri aðila. Er kominn með einhverjar hugmyndir um spennandi rannsóknir en maður verður bara að bíða og sjá. Gæti orðið nokkuð snúinn mánuður. Læt vita þegar eitthvað stórkostlegt gerist.

Kveðja, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gleðilegt ár Bjarni og co. Cocoa puffs í áramótamat er líklega afar eftirminnilegt. Gakk vel á nýja árinu og vonandi finnurðu fljótt eitthvað að rannsaka. Kv Hrafnhildur og co i Norge.
Bjarni sagði…
Já takk fyrir það. Hvað er aftur bloggið hjá þér Hrafnhildur? Bið að heilsa....

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap