Blogg um ekkert
Nú er ég að gera það sem ég ætlaði aldrei að gera, blogga um ekki neitt. Var að koma ofan af golfvelli þar sem við Gunni fylgdumst með Arctic Open. Það var ágætt, sæmilega mikið af hallærislegum köllum með skyggnishúfur og einn og einn búinn að fá sér vel í litlu tánna. Júsí stemmning og kellingar með sólskyggni og leðurhúð.
Gærdagurinn átti að verða besti dagur í heimi og við Gunni og Þórður ákváðum að nota veðrið vel og spila golf á Dalvík. Völlurinn þeirra er reyndar í Svarfaðadal og er mjög huggulegur en jæja.........
Ég spilaði hræðilega, Þórður braut nýju Callaway sjöuna mína í runna og á leiðinni af vellinum svona ca. 50 km frá Akureyri gaf bílinn olíuljós og allt stopp. Höfðum okkur reyndar til Dalvíkur eftir símtal við bifvélavirkja og svo í bæinn eftir að hafa velt fyrir okkur Hafoline olíum í drykklanga stund og verslað veitingar af appelsínugulri meikdrottningu sem ég gæti trúað að hafi verið ungfrú Dalvík 1985. Ég hef alveg verið í meira hátíðarskapi.
Ef einhver les þetta þá vil ég biðjast afsökunar á íþyngjandi skrifum en ég er allavegana búinn að koma þessu frá
Góða nótt

Ummæli