Færslur

Sýnir færslur frá október, 2026

Styrktaræfingarnar

Mynd
Fallegur morgun á Akureyri.   Ég hef oft tekið eftir því að ef það líður of langt á milli þess sem ég geng, t.d. í vinnuna, þá fara mjóbakið og lappirnar að kvarta eftir kannski bara 2 km. Sem er auðvitað stórmerkilegt þegar maður eyðir hátt í tíu tímum á viku í að þjálfa á sér lappirnar. Í morgun gekk ég í vinnuna í fyrsta skipti í töluverðan tíma og beið eftir kunnuglegum þreytumerkjum. En það gerðist bara ekki neitt. Hvorki í mjóbakinu né löppunum. Munurinn er sá að undanfarið hef ég verið duglegur að lyfta. Hjólreiðar eru auðvitað frábærar, en þegar maður hugsar út í það er þetta ansi einhæf iðja. Sömu vöðvarnir, sama hreyfingin, klukkutíma eftir klukkutíma. Maður getur verið í hörkuformi á hjóli en samt orðið hálfónýtur við það eitt að nota líkamann í eitthvað annað. Þetta er allavega ágætis áminning um að hjólaform og almennur líkamlegur styrkur er ekki alveg það sama. Ég er því búinn að ákveða að halda áfram að lyfta þegar keppnistímabilið byrjar, þótt ég dragi væntanlega að...