Þetta mjatlast.....

Síðustu fjórar vikur á Strava að frátölum 2 klst lyftingum/viku.

Maður heldur áfram að leggja inn í bankann og reyna að vera þolinmóður. Þetta er langtímaverkefni. Eins og ég hef margoft komið inn á, þá hef ég ekki alveg verið upp á mitt besta síðasta árið en held að það séu jákvæð teikn á lofti. Ég er að koma út úr viku sem endar í tæpum 14 klst. með göngutúrum og lyftingum og mér líður vel. Mér finnst þolið gott og ég á orðið aðeins auðveldara að halda afli.

Stefnan hjá mér er að komast í svipað form og vorið 2024 en með meiri endingu (durability). Þá var ég í kringum 65 kg. og með FTP í kringum 270/280. En í vor verð ég með 3 auka ár í löppunum og það ætti vonandi að skila manni að hanga lengur á lífi í erfiðum keppnum. 

Í morgun var ég 69 kg og er búinn að stökkva upp um 1-2 kíló á frekar stuttum tíma. Sennilega er þetta kreatín og lyftingar að mestu. Ég er að spá í að fara að labba í vinnuna og sjá hvort það skili sér ekki í smá þyngdartapi. Tökum stöðuna 25. nóv. Góðar stundir!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Veðurblíða og töluverð sól

Negri í Þistilfirði