Veðurblíða og töluverð sól
Jæja nú hefur heldur betur hlaupið á snærið hjá sólþyrstum háskólanemum og veðurblíðan hér nær tæpast nokkru tali. Hitinn skríður vart undir 40°C á næturnar, enda sól allan sólahringinn. Vinnuvélar ryðja okkur leið í skólann í gegnum þykkt haf ávaxta og peningaseðla. Við stjórnvölinn sitja syngjandi mjaltastúlkur með ljósa lokka, íklæddar þjóðbúningum, skreyttum gulli og glissteinum. Í ánum rennur svo ískalt kampavín og kátir dvergar með hörpur sigla naktir niður á kanóum gerðum af kandís og glassúri.
Þetta hefur haft töluvert jákvæð áhrif á sálartetrið og ekki spillir fyrir að maður er búinn að drulla sér af stað í ræktina. Hef farið 2 síðustu daga og líst bara vel á aðstöðuna og vaknaði óvenjuhress í morgun. Kannski líka vegna þess að ég tók eftir því í gær að lýsið sem ég keypti og hef verið að neyta er selalýsi og ég fylltist einhverjum karlmennskumóð við þá uppgötvun. Þessi fjandi hefur jákvæð áhrif og ég hef löngun í að bera þunga steina og höggva tré. Einu neikvæðu áhrifin eru að hárþynningin á toppstykkinu hefur held ég aukist en hárvöxtur á eyrum og þríhöfðum hefur að sama skapi margfaldast.
Var svo að koma úr dýrindis kvöldverð sem var í boði skólans og loksins var boðið upp á eitthvað annað en brauð. Grillað kjöt, kjúklingur, pulsur, allskyns sallöt, ólívur og svo veglegt sjávarréttahlaðborð. Ég sat í félagsskap þriggja íslenskra vina minna og við gleyptum þetta í okkur eins og torfkofaskrælingjar þar til við stóðum á öndinni. Jæja þetta er ágætt í bili og ég verð að fara að hvíla stæltan og loðinn skrokkinn. Bið að heilsa ykkur lömbin mín.

Ummæli