Færslur

Sýnir færslur frá maí, 2026

Já já

Mynd
Við Munkaþverá Það er næsum mánuður síðan ég skrifaði hingað inn en það hefur ekki legið vel á mér og ég ekki nennt að vera með neitt raup. Fór eina ferð til Skotlands sem var mikið ævintýri þó ég hafi ekki náð þeim markmiðum sem ég setti mér. Annars er lífið bara vinna og æfingar og mótin að fara tínast inn. Ég geri mér hóflegar væntingar um árangur en ætla að leggja þeim mun meira upp úr því að hafa gaman og spjalla við góða hjólavini héðan og þaðan af landinu. Myndin þarna uppi er tekin úr túr dagsins sem var nýttur í að prufa 2.1 Thunder Burt dekk. Ég er svo mikill ketlingur niður brekkur og stífur á hjólinu að ég þarf að bæta það upp eins og ég get með öllum tiltækum ráðum, þ.m.t með því að hafa breið dekk sem gefa góða dempun. Á náttúrulega eftir að prufa þau aðeins betur en mér líst skuggalega vel á þau. Ég er vonandi kominn með dekk sem ég get notað í sem flest því það er falleg draumsýn að hafa eina tegund af dekkjum í allt. Ég keypti hjólið í fyrra og er strax kominn með fjór...

Stöðuleiki er lykillinn

Mynd
Síðasti mánuður á Strava (lyftingar ekki með). Ég held áfram að koma til og er loksins farinn að kannast aðeins við mig aftur. Ég hef sennilega verið með hærri w/kg hér fyrir 2 árum en þetta er allt í áttina (viktin líka). Það sem ég hef helst áhyggjur af núna er fittið á gravel hjólinu fyrir keppnina í Skotlandi eftir 2 vikur. Ég er eiginlega kominn á þá niðurstöðu að hjólið sé óþarflega lítið fyrir mig og það er tvennt í stöðunni i) prufa mig áfram með stamma eða ii) eða skipta út hjólinu. Ætli ég prufi ekki stamm fyrst og sjái svo til. Í gær tók ég 5 klst rólegan túr til að venja mig við hjólið. Fór upp í Sölvadal og reyndi að þræða alla malarslóða sem ég fann. Þetta gekk s.s. ágætlega og ég var furðu góður í morgun þegar ég vaknaði. Eftir smá spjall við Chat GPT í morgun prufaði ég að lækka hnakkinn á hjólinu um hátt í 1 cm og ég er ekki frá því að það hafi hjálpað. Ég fór meðfram hitalögninni að Laugalandi og til baka á góðri keyrslu og var ekki jafn búinn í höndunum og síðustu sk...