Færslur

Sýnir færslur frá ágúst, 2026

Sárabót

Mynd
Ég, Röggi (1. sæti) og Hjalti Jóns (3. sæti). Hjólaárið hefur verið frekar þungt hjá mér og ekki allt of mikið til að gleðjast yfir. Á æfingatímabilinu var eins og ég væri í handbremsu og 10-20% undir getu síðustu tveggja ára. Það var svo ekkert til að auka gleði og bjartsýni að ég fékk á kjaftinn í The Gralloch og var langt undir væntingum og getu. Sólin reis aðeins í Greflinum og þar bætti ég tímann minn nokkuð og svo átti ég ágætis Rift (140 km) og var ekki langt frá palli. HRÍ götuhjólamótin voru s.s. engin skelfing en heldur ekkert til að tala um. Það var því ágætt að enda þetta á Orminum (68 km) og þar náði ég á pall þriðja árið í röð, núna annað sæti (búinn að prufa hin tvö). Ég hef ekki neitt að skrifa metnaðarfulla keppnispistla eins og ég gerði og nenni því heldur ekki núna. Það er hvort sem er ekki frá miklu að segja; við Röggi stungum af og vorum komnir með tæplega 11 mínútna bil þegar við komum í mark. Og hann tók mig í endaspretti eins og 2024. Það venst illa að tapa í en...

Þokast nær

Mynd
Úr sólinni í Svíþjóð. Ég laskaði rifin á mér í Riftinu, brot eða brák- veit ekki hvort. Þetta hefur sett strik í reikninginn og ég hef hvorki getað keppt né heldur æft eins og ég vildi. Ég hef bara hjólað rólegar æfingar og læt þetta ekki taka mig á taugum. Svona er lífið, það má alltaf reikna með að veikindi eða meiðsli setji strik í reikninginn. Um helgina ætla ég samt að gúffa í mig verkjatöflum og keppa í Orminum- síðasta móti sumarsins. Það er frekar stutt og snarpt. Ég verð aumur eftir það en lifi af, þ.e. ef ég drepst ekki. Annars hef ég verið að reyna að koma mér í gang í vinnu eftir sumarfrí. Vika tvö að klárast. Þetta byrjaði þungt og hægt en ég er aðeins að ná mér á strik. En andlega er ég hálf þungur og í aðra röndina langar mig að komast aðeins úr þessu umhverfi og fá smá betri hvíld. Þetta hefur verið erfitt ár og ég er stundum eitthvað hálf eirðarlaus og ómögulegur, svo ég sé bara heiðarlegur með það. En hvernig lýsir þetta sér? Ég vakna 7 og drekk kaffi og borða. Mæti í...