Sárabót

Ég, Röggi (1. sæti) og Hjalti Jóns (3. sæti).

Hjólaárið hefur verið frekar þungt hjá mér og ekki allt of mikið til að gleðjast yfir. Á æfingatímabilinu var eins og ég væri í handbremsu og 10-20% undir getu síðustu tveggja ára. Það var svo ekkert til að auka gleði og bjartsýni að ég fékk á kjaftinn í The Gralloch og var langt undir væntingum og getu.

Sólin reis aðeins í Greflinum og þar bætti ég tímann minn nokkuð og svo átti ég ágætis Rift (140 km) og var ekki langt frá palli. HRÍ götuhjólamótin voru s.s. engin skelfing en heldur ekkert til að tala um. Það var því ágætt að enda þetta á Orminum (68 km) og þar náði ég á pall þriðja árið í röð, núna annað sæti (búinn að prufa hin tvö).

Ég hef ekki neitt að skrifa metnaðarfulla keppnispistla eins og ég gerði og nenni því heldur ekki núna. Það er hvort sem er ekki frá miklu að segja; við Röggi stungum af og vorum komnir með tæplega 11 mínútna bil þegar við komum í mark. Og hann tók mig í endaspretti eins og 2024. Það venst illa að tapa í endaspretti en það hefur verið saga mín síðustu tvö ár og eitthvað til að vinna í.

Þar sem veðurspáin eftir Orminn var góð þá bað ég Ingvar að henda inn æfingaviku og hef verið að hjóla mikið þessa viku en svo er komið að hvíldartímabili með engum skipulögðum æfingum í 3 vikur. Bara hjóla ef ég nenni, skokka og lyfta.

Rifbeinin eru reyndar ekki orðin góð eftir krassið en ég prufa að skottast eitthvað í gymmið. Elskykkur

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði