Styrktaræfingarnar

Fallegur morgun á Akureyri.

 

Ég hef oft tekið eftir því að ef það líður of langt á milli þess sem ég geng, t.d. í vinnuna, þá fara mjóbakið og lappirnar að kvarta eftir kannski bara 2 km. Sem er auðvitað stórmerkilegt þegar maður eyðir hátt í tíu tímum á viku í að þjálfa á sér lappirnar.

Í morgun gekk ég í vinnuna í fyrsta skipti í töluverðan tíma og beið eftir kunnuglegum þreytumerkjum. En það gerðist bara ekki neitt. Hvorki í mjóbakinu né löppunum. Munurinn er sá að undanfarið hef ég verið duglegur að lyfta.

Hjólreiðar eru auðvitað frábærar, en þegar maður hugsar út í það er þetta ansi einhæf iðja. Sömu vöðvarnir, sama hreyfingin, klukkutíma eftir klukkutíma. Maður getur verið í hörkuformi á hjóli en samt orðið hálfónýtur við það eitt að nota líkamann í eitthvað annað.

Þetta er allavega ágætis áminning um að hjólaform og almennur líkamlegur styrkur er ekki alveg það sama.

Ég er því búinn að ákveða að halda áfram að lyfta þegar keppnistímabilið byrjar, þótt ég dragi væntanlega aðeins úr því. Enda er planið ekki bara að geta hjólað hratt næsta sumar heldur líka að koma sér upp lífstíl sem stuðlar að jafnvægi og almennu heilbrigði.

Annað, á Giant hjólinu mínu er ég með aflmæli beggja megin og hef verið að fylgjast með því síðustu ár hvernig aflið í vinstri fætinum hefur verið að dala. Það er ekki óalgengt að það sé ójafnvægi á milli hjá fólki en ég var oft í kringum 50/50 og það pirrarr mig að vera oft kominn í 46/54. Það skrítna er að ef ég er standandi þá núllast það út. Mig langar að kíkja til sjúkraþjálfara til að skoða þetta en hann þyrfti helst að hafa eitthvað vit á hjólum.

Það er pínu ónotalegt að á sama tíma og þetta hefur verið að gerast hef ég átt erfiðara og erfiðara að pikka með vinstri hendinni. Sennilega tengist þetta bara slysinu um árið þar sem ég fékk þungt hökk á vinstri helming líkamans- en maður fer oft auðvitað að ímynda sér allt hið versta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Blogg um ekkert

Negri í Þistilfirði