Það sem er af mér að frétta......
er bara nokkuð gott. Verkefnavinna í skólanum kominn á snúning og nokkrar "dauðalínur" færast nær. Eins og ég gat um í fyrri póstum þá er orðið nokkuð haustlegt um að litast og nokkuð smekklegt bara. Næturfrost farið að ágerast og fallegar stillur á morgnanna með hrími og með því. Álitlegustu morgnar til gæsaveiða, vantar bara gæsir og byssu.
Pabbi hringdi í mig í dag og eru hann og Gísli staddir við veiðar í Søderåkra. Komst ekki með í þetta skiptið en reyni að fylgjast með þeim á Google earth og í gegnum miðil. Þeir karlarnir eru orðnir hroðalegir og það sleppur ekkert lifandi frá þessum skepnum. Pabbi búinn að skjóta elg og bock og Gísli búinn að skjót ref síðast þegar ég vissi. Gísli brúkar handfallbyssu í caliberi 9,3x62 og refurinn átti ekki séns á 200 metrum. Fólksflótti er orðinn töluverður frá austurströnd Svíþjóðar enda bara sviðin jörð og brunnir skógar. Út úr reykjamekkinum koma svo villimenn tveir sem hylja loðna búkana með elgskinnum. Á höfði bera þeir villigaltarhöfuð, á fótum rauðrefalík og úr beltum hanga grágæsir. Ekkert sleppur lifandi nema kvikindi þau er djúpt í jörðu leynast. Öskur síðasta elgsins kafna í græðgislegu smjatti þar sem hann er étinn lifandi í tunglsljósinu með mosa og laufum. Þannig sé ég þetta allaveg fyrir mér.
Svo hringdi hann Gunni í mig og er að spá í að koma í heimsókn í byrjun nóvember að spila golf. Ekki slæmt það en á eftir að koma betur í ljós. Gott í bili og ég bið að heilsa ykkur dúfurnar mínar.

Ummæli
"Ses i kriget",
Pápi