Fyrsti í útihjóli 2026

Tobbi, Stebbi Garðars og Dóri við malbiksenda eystri, Rútsstaði.

Í fyrra var fyrsti túrinn á götuhjóli um miðjan mars, ef ég man rétt, og árin þar á undan í kringum 2. apríl. Þrátt fyrir óvenju mildan og snjóléttan vetur í ár, þá tafðist þetta samt- klassískt íslenskt, vegna snjóþyngsla núna í mars og byrjun apríl.

En loksins.

Götuhjólið var tekið niður af veggnum í fyrradag, 14. apríl, og ég náði fyrstu alvöru æfingunni úti í prýðisgóðu veðri. Það er alltaf eitthvað sérstakt við þennan fyrsta túr- allt verður aðeins léttara, tíminn líður hraðar og maður man af hverju maður nennir þessu.

Ég slóst í för með þremur kempum sem eru ekki þekktar fyrir að taka því rólega. Ég vissi alveg hvað ég var að fara út í- þetta yrði engin róleg endurance æfing eins og planið sagði til um. Yfirleitt er ég sá leiðinlegi sem heldur sig við vöttin og neitar að láta draga sig út fyrir planið, en í þetta skiptið lét ég undan og skrúfaði aðeins upp hraðann.

Og það var einfaldlega bara helvíti gaman.

Það er eitthvað við að fara aðeins út fyrir rammann, strákast aðeins og keppast, jafnvel þó það sé bara óformlega á æfingu.

Niðurstaðan? Ég kem ágætlega undan vetri.

Ekki í toppformi- en alls ekki langt frá því heldur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Mývatnshringurinn 2025 - Post Race Pistill

The Rift 2025 - Frá himnaríki til........

Negri í Þistilfirði