Fésbók

Afhverju?
 

Það er orðið ansi langt síðan ég fór að spyrja mig: Hvað er Facebook eiginlega að gera fyrir mig?

Hversu oft loka ég forritinu og líður eins og betri manneskju?
Hvað lærði ég síðast þarna inni?
Hvenær fór ég síðast á viðburð sem ég fann þar?

Eða er ég bara að eyða tíma?

Ég ætla ekki að mála skrattann á vegginn- það er alveg eitthvað gott þarna inni. En æ oftar stend ég mig að því að vera fastur í endalausu “dauðaskrolli”. Myndbönd sem ég man ekki eftir 30 sekúndum síðar. Efni sem skilur ekkert eftir sig nema smá tóm.

Og svo er veggurinn orðinn undarleg blanda af fólki sem ég þekki… og fullt af fólki sem ég þekki alls ekki.

Það skrýtna er að ég eyði sjaldan löngum tíma í einu. Þetta eru frekar litlar skammtar, nokkrar sekúndur hér, mínúta þar. Ég gríp símann, oft án þess að hugsa, opna appið og áður en ég veit af er ég kominn eitthvert sem ég ætlaði mér aldrei að fara.

Svo er þetta alltaf opið. Í símanum. Í vafranum. Heima. Í vinnunni. Ég er ekki einu sinni að leita. ég er bara að athuga. Endurhlaða. Skrolla. Endurtaka.

Við Þolli ræddum þetta í gær og komumst að því að maður hættir þessu líklega aldrei alveg. En kannski er það ekki markmiðið heldur.

Kannski er fyrsta skrefið einfaldara:
Að hætta að láta þetta gerast ósjálfrátt.

Að ákveða hvenær ég fer inn og hvenær ekki.
Skammta mér tíma. Einu sinni á dag. Punktur.

Engin bylting, bara smá stjórn aftur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Mývatnshringurinn 2025 - Post Race Pistill

The Rift 2025 - Frá himnaríki til........

Negri í Þistilfirði