Á góðu skriði
| Síðustu æfingavikur- að frátöldum lyftingum. |
Functional overreaching er þegar maður eykur æfingaálag meðvitað svo líkaminn fer tímabundið í þreytu og performance getur lækkað, en með réttri hvíld og næringu svarar hann með að aðlagast og verða sterkari en áður (supercompensation).
Ég er búinn að vera á góðu skriði síðustu vikur og náð að klára allt eftir plani. Vikurnar hafa verið byggðar upp af 2 erfiðum gæðaæfingum og svo fyllt upp í með endurance til að fá magn (volume). Til viðbótar hef ég svo farið í ræktina þar sem ég einblíni á efripart og miðsvæðið.

| Á Grenivík í dag. |
Ekki veit ég hvernig Ingvar mun setja upp næstu viku en ég verð að viðurkenna að ég svolítið þreyttur núna. Í hádeginu hjólaði ég út á Grenivík og þegar ég var að koma aftur í bæinn fann ég að það væri ekki tilgangur í því að halda áfram, heldur gáfulegra að koma sér heim og hvíla sig.
Í dag eru 3 heilar æfingavikur eftir fyrir The Gralloch í Skotlandi og svo "teipering". Ég er að verða pínu spenntur en ekki orðinn stressaður ennþá. Það kemur. Eins og ég hef komið inn á þá er markmiðið topp 25% í mínum aldursflokki sem gefur rétt á Evrópu- og Heimsmeistaramót. Sjáum til.

Ummæli