Random

Þrjár sæmilegar vikur og ein veikindavika.

Nú er ég kominn í „grunntímabil/þoltímabil“, aka base season- sem þýðist reyndar ekkert sérstaklega vel. Þá snýst þetta fyrst og fremst um að byggja upp góðan þolgrunn (loftháðan) sem maður byggir svo ofan á með erfiðari og sérhæfðari æfingum þegar líður á veturinn. Það er líka mikilvægt að styrkja sig samhliða þessu og ég fer í ræktina í allavega tvo tíma á viku (sem er ekki með á myndinni).

Úr einu í annað.

Á svölunum hjá mér liggja nú fjórir fullir ruslapokar af dósum, sem áður fyrr hefðu sennilega verið ársbirgðir af drykkjarumbúðum. Ég tók nefnilega upp á þeim leiðinlega ávana að lepja alltaf Kristal með matnum, eiginlega án þess að finnast það einu sinni sérstaklega gott með mat. Þessa vikuna hef ég sleppt því meðvitað og viti menn: ef ég held því áfram mun ég spara yfir 50 þúsund kall á ári. Þeim peningum er ég alveg til í að eyða í eitthvað annað. Á sama tíma er ég að reyna að venja mig á að vera með brúsa á mér á ferðalögum svo ég þurfi ekki alltaf að kaupa mér eitthvað að drekka.

Og fyrst ég er kominn út í þessa sálma: Í vinnunni hef ég sennilega farið út að borða tvisvar í viku að meðaltali án þess að spá mikið í kostnaðinn. Ég fór eitthvað að ræða þetta í vinnunni og hugsaði með mér að það væri nú ekki flóknara en að grípa bara með eina samloku og lítið skyr. Ef ég reikna með að það kosti um 600 kall sparast furðulega mikið yfir árið.

Talandi um að fara út og suður — þetta er nú orðið ansi random bull

Yfir og út.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Negri í Þistilfirði

Kylfingur spjall