Lítil sköpunargleði

Vaðlaheiðin í dag.

Nennti aldrei að skrifa pistil um The Gralloch og ætlaði að bæta upp fyrir það með pistli um Grefilinn. Er búinn að vera með hann í smíðum í smá tíma en hef mig ekki í að klára hann. Ég er ekki mjög atorkusamur þegar kemur að sköpun þessa dagana. Ég hvorki nenni að mála eða skrifa. Ég held að heilinn á okkur öllum sé að verða grautur af ofnotkun á einhverju stafrnænu eitri.

Veðrið hérna fyrir norðan hefur verið svona la la upp á síðkastið. Ekki stöðugur viðbjóður en það skiptast á skin og skúrir- bókstaflega. Í gær (föstudag) var ég að sjá um UMFÍ 50+ götuhjólamót fram í firði og við fengum allar útgáfur af veiðri. Þegar ég var að græja markið var ég sveittur í sól og logni en eftir smá stund var komið hífandi og rigning. Svo rigning og sól, meiri vindur en endaði sæmilega. Þetta allt á tveimur klukkutímum.

Í dag átti ég 2x25 mín tempó æfingu og ákvað að halda upp á Vaðlaheiði. Það var sjúklega gaman og veðrið var til friðs. Hitti Sóley og Garðar og hefði í rauninni alveg verið til í að hjóla í allan dag. Á leiðinni heim stoppaði ég í nýja bakaríinu niðri í bæ og greip með mér súrdeigssnúð með rjómaostakremi. Mæli með.

Nú þarf ég að hætta því það er að byrja lottó. Ég vinn í kvöld og kaupi mér raðhúsíbúð með bílskúr. Þá verður lífið fullkomið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Negri í Þistilfirði

The Rift 2025 - Frá himnaríki til........

Æfingar rúlla af stað...