Færslur

Ekkert að frétta

Maður fær stundum hálfgerðan bömmer ef maður skrifar ekki eitthvað hérna inn. Þá rýkur maður til á endanum og skrifar bara eitthvað, þó lítið sé að frétta. Helstu fréttirnar eru kannski að nú styttist í sumarfríið hjá mér. Ég á eftir að vinna 2 barnlausar vikur og svo hef ég eina viku út af fyrir mig í fríi. Eftir það taka við 3 vikur með börnin. Eins og þeir sem þekkja mig vita þá finnst mér ekkert voðalega gaman að plana hlutina of mikið þannig það eina sem ég hef ákveðið er að: Hjóla mikið á meðan börnin eru ekki hjá mér Fara með krakkana í hjólaferði í Kjarnaskóg og tjalda Fara til Reykjavíkur að hjóla með Brynleifi. Ég þarf að fara til Reykjavíkur í næstu viku og sumarfríið mitt byrjar í raun þar. Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér hvort ég græji ferðahjólið og taki það með mér til Reykjavíkur. Taki svo strætó á Höfn í Hornafirði og  hjóli austur fyrir land og heim í Mývó. Ég er samt einhvern veginn ekkert rosalega spenntur fyrir því. Ef ég geri það þarf ég allavega að far...

Brokkgengi

Vinnulega séð hefur þessi vika verið afar sveiflukennd, svo ekki sé meira sagt. Það hafa komið kaflar þar sem maður gleymir sér í verkefnum sem þarf að leysa strax (þannig vil ég hafa það) en inn á milli hafa komið dauðari stundir. Síðan átti ég afar óskemmtilega reynslu varðandi samskipti við aðrar stofnanir þar sem ég hafði eiginlega bara verið stunginn í bakið og leið eins og fávita. Viðbrögð mín við þessu voru særindi og reiði. Ég gerði veður út af þessu og ætlaði að segja mig frá ákveðnum verkefnum og fara í fýlu. En svo áttaði ég mig bara á því að ég var að taka þetta allt of persónulega. Ákvað bara að slaka á og reyna að hafa þetta ekki svona fokking erfitt alltaf. Þetta er bara vinna og ég verð að muna að vera þakklátur fyrir hana. Be like water. Ágæt æfingavika í Training For Worriors. Þessar æfingar taka bara býsna mikið á og ég er bara aðeins dasaður nú á föstudegi, þrátt fyrir að hafa ekki hjólað neitt. En ég fæ líka 3 daga hvíld núna út af þessu fótboltamóti fyrir sunnan. ...

Já já

Nett report í upphafi viku: Staða bara góð. Eftir brútal strengi [sem ég fékk eftir Training For Worriors æfinguna í síðustu viku] er ég búinn að jafna mig. Tók hvíldardag á föstudaginn en hjólaði svo rólega fram í Hrafnagil á laugardaginn. Ætla að taka æfingu í dag, á morgun og fimmtudaginn í TFW en kemst væntanlega ekkert að hjóla af viti í þessari viku.´ Fer með börnin suður um helgina. Brynleifur að fara að keppa í fótbolta á Selfossi. Reynum væntanlega að gera eitthvað annað skemmtilegt ef tími leyfir.  Mataræðið hefur verið alveg ágætt eftir að ég skipti yfir í þessar 6 basic ráðleggingar frá Alan Thrall. Þetta er í rauninni alger snilld. Þó ég hafi alveg ennþá trú á 16:8 þá finnst mér ógeðlega gott að fá mér sveran morgunmat áður en ég fer í vinnuna. Eftir það læt ég ekkert inn fyrir mínar varir fyrr en í hádeginu og svo ekkert fyrr en í kvöldmatnum. Að sjálfsögðu sleppir maður öllu narti líka. Mamma er búin að vera að fylgja þessu líka og líkar vel. Rókk og ról

Fjárhagslegar þrengingar framundan.

Eftir söluna á Dalsgerðinu sat ég á peningum sem ætlaðir voru til að greiða inn á skuldabréfið mitt í Sparisjóðnum. Ég ætlaði samt alltaf að nota hluta af þeim til að koma mér fyrir og kaupa það sem upp á vantaði eins og gardínur, ljós, hillur og svo fór einhver kostnaður í parket, málningu og annað slíkt. Með þessa summu á bókinni lifði ég frekar áhyggjulausu lífi og vissi að ég gæti alltaf reddað mér um næstu mánaðarmót. En í fyrradag dreif ég mig í að borga þetta inn á skuldabréfið svo ég myndi nú ekki eyða þessu öllu og því er ég ekki með neinn stuðpúða núna. Það má því segja að alvara lífsins sé að taka við. Ég er búinn að setja upp í excel mánaðarleg útgjöld mín og þrátt fyrir að eiga ekki bíl, þá hef ég ekki mikið fjárhagslegt svigrúm. Ferðalög, græju- og hjólakaup, húsgagnakaup- jafnvel bara fatakaup, er nú orðið eitthvað sem ég þarf að hugsa vandlega um áður en ég læt af því verða. Það verður harðari forgangsröðun hjá mér heldur en verið hefur. Ég er t.d. að fara til Reykjavík...

Ef ég man rétt.....

Mynd
Ég er búinn að vera nokkuð mikið á hjólinu upp á síðkastið. þá var ég að væla eitthvað í síðasta bloggi um mataræðið og best að ég haldi því áfram. Ég ætla reyndar fyrst að rúlla aðeins yfir hvað ég hef verið að gera í ræktinni og á hjólinu. Í síðustu viku hjólaði ég 230 km + samgönguhjólreiðar. Í þessari viku er ég svo búinn að taka 4 crossfit tíma + allar samgönguhjólreiðarnar og eina 30 km æfingu. Ég finn að ég er líka að komast í ágætis form aftur. Eftir að hafa verið alltaf á leiðinni í að laga mataræðið þá held ég loksins að ég sé dottinn inn á eitthvað sem ég nenni að gera. Ég horfði aftur á myndband með Alan Thrall sem ég hafði horft á fyrir nokkru síðan og fundist meika mjög mikinn sens. Þetta er beisikklí svona: No snacks (ekkert milli mála) 1 prótein og 1 kolvetni í hverja máltíð Enga ábót Ef þú færð þér skyndibita þá bara velja 1 (t.d. bara borgarann). Engar kaloríur í vökvaformi Ekki borða þar til þú ert pakksaddur Ég er búinn að vera að hafa þetta bakvið...

Matarsukk par excellence

Eins og ég kom að í fyrri pósti, þá er ég búinn að vera duglegur að hreyfa mig síðustu 2 til 3 vikurnar. Hjóla heil ósköp (samgöngur og æfingar), verið í fjárhúsunum og er byrjaður að fara í ræktina aftur. Þetta er allt gott og blessað nema að mataræðið hjá mér hefur verið hryllilegt. Ég er eiginlega viss um að ef ég væri búinn að haga mér vel  í þeim efnum líka væri ég orðinn alveg tálgaður og kominn í keppnisform. Ég missti það alveg um helgina en hugsaði með mér að þetta væri nú frí og mamma ætti afmæli osfv (bla bla bla). Á meðan ég var í því sukki ætlaði ég að byrja á 16:8 á mánudaginn og taka líka mataræðið í gegn. Á mánudaginn fékk ég mér hinsvegar hrökkbrauð með smjöri kl. 09 í vinnunni og svo var afmæliskaffi kl. 10.00 þar sem maður fór all in. Í hádeginu át ég svo síld í majonessósu og karmelluköku og hraunbita í eftirmat. Meira kex í kaffinu kl 14 og 15 og svo kjúkling í sósu með gratíni í kvöldmatinn. Í dag náði ég reyndar að fasta til kl. 11.30 en fékk mér svo köku...

Hjóla hjóla og ræktin opin

Barnalaus vika á enda og ég nýtti hana vel í hjólreiðar. Hjólaði 3x hérna í Eyjafirðinum, hjólaði svo upp í Mývatnssveit og svo einn hring í kringum vatnið. Samtals hjólaði ég því rúmlega 230 km. á 7 dögum og er bara helvíti sáttur við það. Engir verkir, engir strengir- bara í fínu formi. Í dag opnaði ræktin aftur eftir 2 mánaða lokun. Það var þungt hljóðið í Binna og hann er ekki viss um að þau nái að lifa þetta af. Engin kort lengri en 3 mánaða verða seld í bili og enginn veit neitt. Ég var búinn að ákveða að færa mig yfir í Training for worriors í KA heimilinu en núna hef ég það varla í mér. Langar helst að styðja við bakið á Crossfit Hamar á þessum erfiðu tímum. En æfingin var fín þó ég hafi náð að tjóna mig á milli herðablaðanna þegar ég var að "celan-a", greinilega verið of laus í bakinu og rikkt þessu eitthvað til. En utan við að vera búinn að skipuleggja 3 crossfit æfingar í vikunni þá er ekkert annað á prjónunum. Ég var að setja upp studioið í stofunni í gær og þ...