Fjárhagslegar þrengingar framundan.
Eftir söluna á Dalsgerðinu sat ég á peningum sem ætlaðir voru til að greiða inn á skuldabréfið mitt í Sparisjóðnum. Ég ætlaði samt alltaf að nota hluta af þeim til að koma mér fyrir og kaupa það sem upp á vantaði eins og gardínur, ljós, hillur og svo fór einhver kostnaður í parket, málningu og annað slíkt.
Með þessa summu á bókinni lifði ég frekar áhyggjulausu lífi og vissi að ég gæti alltaf reddað mér um næstu mánaðarmót. En í fyrradag dreif ég mig í að borga þetta inn á skuldabréfið svo ég myndi nú ekki eyða þessu öllu og því er ég ekki með neinn stuðpúða núna. Það má því segja að alvara lífsins sé að taka við.
Ég er búinn að setja upp í excel mánaðarleg útgjöld mín og þrátt fyrir að eiga ekki bíl, þá hef ég ekki mikið fjárhagslegt svigrúm. Ferðalög, græju- og hjólakaup, húsgagnakaup- jafnvel bara fatakaup, er nú orðið eitthvað sem ég þarf að hugsa vandlega um áður en ég læt af því verða. Það verður harðari forgangsröðun hjá mér heldur en verið hefur. Ég er t.d. að fara til Reykjavíkur um næstu helgi með börnin og þarf að leigja bíl. Þetta mun setja stórt strik í reikninginn.
Ég er búinn að vera að skoða hvað ég geti hugsanlega skorið niður og það er fátt um fína drætti. Ég er t.d. ekki með miklar áskriftir af sjónvarpi eða öðru. Það er helst að ég gæti hætt með Spotify og Netflix, en það vil ég ekki gera (enda ekki svo dýrt). Jú og svo er ég með áskrift í Lottó og Happdrætti Háskólans, það má deila um hversu gáfulegt það nú er. Það er í rauninni helst í tengslum við matarinnkaup sem ég get sparað og þar er númer 1, 2 og 3 að hætta að fara út að borða.
Ég er eiginlega búinn að lifa eins og gyðingur núna í heila viku og er samt búinn að ná að eyða 15.000 krónum. Hendum inn í þetta 2 ferðum á veitingastað og ég er kominn yfir 20 þúsund kallinn. Ég held að ef ég ætlaði að halda matarkostnaði fyrir mig og börnin (aðra hverja viku) í 80 þúsund krónum á mánuði, þá þurfi mikla útsjónarsemi. Sértaklega þegar maður er að æfa mikið og þarf góða næringu.
Ég er ekki alveg búinn að sjá hvaða leið ég tek í þessu en ég hef grun um að hafragrjón og egg komi sterkt inn.
Ummæli