Ef ég man rétt.....

Ég er búinn að vera nokkuð mikið á hjólinu upp á síðkastið.

þá var ég að væla eitthvað í síðasta bloggi um mataræðið og best að ég haldi því áfram. Ég ætla reyndar fyrst að rúlla aðeins yfir hvað ég hef verið að gera í ræktinni og á hjólinu. Í síðustu viku hjólaði ég 230 km + samgönguhjólreiðar. Í þessari viku er ég svo búinn að taka 4 crossfit tíma + allar samgönguhjólreiðarnar og eina 30 km æfingu. Ég finn að ég er líka að komast í ágætis form aftur.

Eftir að hafa verið alltaf á leiðinni í að laga mataræðið þá held ég loksins að ég sé dottinn inn á eitthvað sem ég nenni að gera. Ég horfði aftur á myndband með Alan Thrall sem ég hafði horft á fyrir nokkru síðan og fundist meika mjög mikinn sens. Þetta er beisikklí svona:

  1. No snacks (ekkert milli mála)
  2. 1 prótein og 1 kolvetni í hverja máltíð
  3. Enga ábót
  4. Ef þú færð þér skyndibita þá bara velja 1 (t.d. bara borgarann).
  5. Engar kaloríur í vökvaformi
  6. Ekki borða þar til þú ert pakksaddur
Ég er búinn að vera að hafa þetta bakvið eyrað og þetta hefur virkað vel fyrir mig. Í dag (Hvítasunnudag) hef ég reyndar aðeins farið út af strikinu en það er líka allt í lagi. En ég held ég þurfi ekkert að útskýra þetta mikið meira. Þó, 1 prótein og 1 kolvetni þýðir í raun bara að máltíð getur ekki staðið saman af t.d. bara kolvetnum og maður á heldur ekki að fá sér "mörg" kolvetni. Ekki borða steik, kartöflu, hvítlauskbrauð og grjón heldur: steik og grjón, eða steik og kartöflu osfv. 

Jæja þetta er gott í bili, ég sé mun á mér og er sprækur.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap