Já já

Nett report í upphafi viku:

Staða bara góð. Eftir brútal strengi [sem ég fékk eftir Training For Worriors æfinguna í síðustu viku] er ég búinn að jafna mig. Tók hvíldardag á föstudaginn en hjólaði svo rólega fram í Hrafnagil á laugardaginn. Ætla að taka æfingu í dag, á morgun og fimmtudaginn í TFW en kemst væntanlega ekkert að hjóla af viti í þessari viku.´

Fer með börnin suður um helgina. Brynleifur að fara að keppa í fótbolta á Selfossi. Reynum væntanlega að gera eitthvað annað skemmtilegt ef tími leyfir. 

Mataræðið hefur verið alveg ágætt eftir að ég skipti yfir í þessar 6 basic ráðleggingar frá Alan Thrall. Þetta er í rauninni alger snilld. Þó ég hafi alveg ennþá trú á 16:8 þá finnst mér ógeðlega gott að fá mér sveran morgunmat áður en ég fer í vinnuna. Eftir það læt ég ekkert inn fyrir mínar varir fyrr en í hádeginu og svo ekkert fyrr en í kvöldmatnum. Að sjálfsögðu sleppir maður öllu narti líka. Mamma er búin að vera að fylgja þessu líka og líkar vel.

Rókk og ról

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Góðan daginn öll

Kylfingur spjall

Negri í Þistilfirði