Ekkert að frétta
Maður fær stundum hálfgerðan bömmer ef maður skrifar ekki eitthvað hérna inn. Þá rýkur maður til á endanum og skrifar bara eitthvað, þó lítið sé að frétta. Helstu fréttirnar eru kannski að nú styttist í sumarfríið hjá mér. Ég á eftir að vinna 2 barnlausar vikur og svo hef ég eina viku út af fyrir mig í fríi. Eftir það taka við 3 vikur með börnin. Eins og þeir sem þekkja mig vita þá finnst mér ekkert voðalega gaman að plana hlutina of mikið þannig það eina sem ég hef ákveðið er að:
- Hjóla mikið á meðan börnin eru ekki hjá mér
- Fara með krakkana í hjólaferði í Kjarnaskóg og tjalda
- Fara til Reykjavíkur að hjóla með Brynleifi.
Ég þarf að fara til Reykjavíkur í næstu viku og sumarfríið mitt byrjar í raun þar. Ég hef aðeins verið að velta fyrir mér hvort ég græji ferðahjólið og taki það með mér til Reykjavíkur. Taki svo strætó á Höfn í Hornafirði og hjóli austur fyrir land og heim í Mývó. Ég er samt einhvern veginn ekkert rosalega spenntur fyrir því. Ef ég geri það þarf ég allavega að fara að redda mér tjaldi og svefnpoka og fara fljótlega að yfirfara allan búnað.
Sama hvort það verður þetta eða eitthvað annað, þá finnst mér að ég verði að reyna að gera eitthvað þessa viku sem ég verð einn. Það verður svo lítil tilbreyting að hanga á Akureyri og hjóla hér.
Annars er ég búinn að vera ágætlega duglegur að æfa. Hjólaði 160 km í síðustu viku og tók 2 æfingar í ræktinni. Hjólaði 80 km í gær og ætla því í ræktina næstu 2 daga og svo er samhjól með hjólreiðahópnum á miðvikudaginn. Hjóla hjóla hjóla.... það snýst einhvern veginn allt um það núna
Kveðja, Bjarni
Ummæli