Brokkgengi
Vinnulega séð hefur þessi vika verið afar sveiflukennd, svo ekki sé meira sagt. Það hafa komið kaflar þar sem maður gleymir sér í verkefnum sem þarf að leysa strax (þannig vil ég hafa það) en inn á milli hafa komið dauðari stundir. Síðan átti ég afar óskemmtilega reynslu varðandi samskipti við aðrar stofnanir þar sem ég hafði eiginlega bara verið stunginn í bakið og leið eins og fávita.
Viðbrögð mín við þessu voru særindi og reiði. Ég gerði veður út af þessu og ætlaði að segja mig frá ákveðnum verkefnum og fara í fýlu. En svo áttaði ég mig bara á því að ég var að taka þetta allt of persónulega. Ákvað bara að slaka á og reyna að hafa þetta ekki svona fokking erfitt alltaf. Þetta er bara vinna og ég verð að muna að vera þakklátur fyrir hana. Be like water.
Ágæt æfingavika í Training For Worriors. Þessar æfingar taka bara býsna mikið á og ég er bara aðeins dasaður nú á föstudegi, þrátt fyrir að hafa ekki hjólað neitt. En ég fæ líka 3 daga hvíld núna út af þessu fótboltamóti fyrir sunnan. Það er sjálfsagt bara jákvætt.
Ummæli