Matarsukk par excellence
Eins og ég kom að í fyrri pósti, þá er ég búinn að vera duglegur að hreyfa mig síðustu 2 til 3 vikurnar. Hjóla heil ósköp (samgöngur og æfingar), verið í fjárhúsunum og er byrjaður að fara í ræktina aftur. Þetta er allt gott og blessað nema að mataræðið hjá mér hefur verið hryllilegt. Ég er eiginlega viss um að ef ég væri búinn að haga mér vel í þeim efnum líka væri ég orðinn alveg tálgaður og kominn í keppnisform.
Ég missti það alveg um helgina en hugsaði með mér að þetta væri nú frí og mamma ætti afmæli osfv (bla bla bla). Á meðan ég var í því sukki ætlaði ég að byrja á 16:8 á mánudaginn og taka líka mataræðið í gegn. Á mánudaginn fékk ég mér hinsvegar hrökkbrauð með smjöri kl. 09 í vinnunni og svo var afmæliskaffi kl. 10.00 þar sem maður fór all in. Í hádeginu át ég svo síld í majonessósu og karmelluköku og hraunbita í eftirmat. Meira kex í kaffinu kl 14 og 15 og svo kjúkling í sósu með gratíni í kvöldmatinn.
Í dag náði ég reyndar að fasta til kl. 11.30 en fékk mér svo köku og hraunbita eftir hádegismatinn. Ég ætlaði að hafa kjúklingabringur og hýðisgrjón í kvöldmatinn en það endaði með hambó og frönskum. Í hádeginu á morgun er ég svo að fara í kódilettur og svo að borða með Halldóru og Bjarna annað kvöld. Guð minn almáttugur...... ég lofa sjálfum mér að reyna að halda aftur af mér á morgun og andskotast svo í kjölfarið til að hafa smá sjálfstjórn...... og bara sjálfsvirðingu. Hvað er að manni??
Mér finnst ekkert meira óaðlaðandi en fólk sem sýnir líkama sínum og sjálfum sér þá óvirðingu að troða í sig endalausum viðbjóði, reykja og fara illa með sig. Það gildir einu hvort fólk er feitt eða mjótt. Að samas skapi finnst mér ekkert meira sexy og cool en fólk sem er með sitt á hreinu og bíður ekki líkama sínum upp á slíkan viðbjóð. Þannig langar mig til að verða, ekki bara stundum, ekki bara þegar ég er í einhverju "átaki", heldur alltaf.

Ummæli