Hjóla hjóla og ræktin opin
Barnalaus vika á enda og ég nýtti hana vel í hjólreiðar. Hjólaði 3x hérna í Eyjafirðinum, hjólaði svo upp í Mývatnssveit og svo einn hring í kringum vatnið. Samtals hjólaði ég því rúmlega 230 km. á 7 dögum og er bara helvíti sáttur við það. Engir verkir, engir strengir- bara í fínu formi.
Í dag opnaði ræktin aftur eftir 2 mánaða lokun. Það var þungt hljóðið í Binna og hann er ekki viss um að þau nái að lifa þetta af. Engin kort lengri en 3 mánaða verða seld í bili og enginn veit neitt. Ég var búinn að ákveða að færa mig yfir í Training for worriors í KA heimilinu en núna hef ég það varla í mér. Langar helst að styðja við bakið á Crossfit Hamar á þessum erfiðu tímum. En æfingin var fín þó ég hafi náð að tjóna mig á milli herðablaðanna þegar ég var að "celan-a", greinilega verið of laus í bakinu og rikkt þessu eitthvað til.
En utan við að vera búinn að skipuleggja 3 crossfit æfingar í vikunni þá er ekkert annað á prjónunum. Ég var að setja upp studioið í stofunni í gær og því ætti ég að gera farið að mála aftur. Engar afsakanir. Svo datt mér aðeins í hug að þvælast eitthvað með börnin um næstu helgi. Veit samt ekki hvert það ætti að vera.

Ummæli