Færslur

Meira um sjálfið

Gott, vont, hamingja, óhamingja.... rigning og þurrkur. Andstæður sem geta ekki án hvor annarar verið. Til þess að ég upplifi hamingju (sem er í sjálfum sér ekkert markmið sem slíkt) þarf ég að dragnast í gegnum einhverja óhamingju og erfiðleika. Þar eru tækifæri fyrir uppljómun. Í mínu bataferli síðustu mánuði hef ég verið að lesa ýmisslegt, hlusta á "podköst" og horfa á fyrirlestra á youtube. Það virðist ekki vera hægt að fara í að vinna með sjálfan sig í dag öðruvísi en að rekast á eitthvað um núvitund. Núvitund.... hvað er það? Eitthvað sem ég lokaði augunum fyrir vegna þess að mér fannst þetta ofnotað tískuorð... sem það er að vissu leiti. Það áhugaverðasta í þessum núvitundarpælingum fyrir mig hefur sennilega verið pælingarnar um sjálfið sem blekkingu og kannski í raun orsök allrar okkar óhamingju. Ég ætla ekki að fara djúpt í þetta hér en langar að birta brot úr bókinni Mátturinn í núinu eftir Eckhart Tolle sem opnaði augu mín ennþá betur fyrir þessu. Ef einhve...

Sinnep og skinka

Mynd
Það er eins með matinn eins og skissurnar- það eru ekki endilega hinar fullbúnu veislumáltíðir sem eru það besta, heldur öllu heldur afgangarnir og snarlmáltíðirnar. Jólin ca. 1993 var ég hjá pabba og Hafrúnu og komst upp á lag með að borða afgangana af dönsku jólaskinkunni á ristað brauð með sterku sinnepi. Hamborgarahryggurinn er fínn í þetta líka. Eftir crossfit tímann í morgun fékk ég mér feita sneið af hrygg með moutard au basilic, heitt kakó og rjóma. Þvílík byrjun á degi!

Skissurnar

Mynd
Ég held ég hafi nú einhverntíman skrifað hér eitthvað um skissur áður. Hvernig þær eru oft miklu skemmtilegri en málverk eða full unnar myndir. Þegar pressan er engin og maður sleppir fram af sér beislinu kemur einhver sannleikur og eitthvað líf í ljós. Það kemur fram hvað mann langar í raun að segja... ekki með orðum. Það er einhver sannleikur þarna djúpt inni sem finnur sér ekki leið út í orðum. Hann er ekki hægt að höndla, ef þú teygir þig í áttina að honum skýst hann alltaf undan áður en þú nærð taki á honum. En stundum kemurðu honum á blað með myndum og málningu. Hegel sagði að hlutverk lista væri ekki að líkja eftir náttúrunni, listir væru ekki til að skreyta umhverfi okkar, ekki til að nota í pólitískum tilgangi eða til að hneyksla. Listir eru til að gera okkur kleift að draga upp og virða fyrir okkur myndir sem endurspegla okkar eigið andlega frelsi- myndir sem eru bara fallegar einmitt vegna þess að þær túlka frelsi okkar. Listir eru til þess að gera okkur kleift að komas...

Sjálfið

Oft hef ég verið á barmi þess að loka blogginu mínu og er ástæðan m.a. sú að maður fær alltaf einhverja útrás og eyðir alltof miklum tíma á fésbókinni. Nú síðustu misserin hefur þetta eiginlega verið að snúast við og mig langar að hætta á FB en halda áfram að blogga. Ég skrifa í rauninni aldrei neitt frá hjartanu inn á FB og fæ enga útrás þar fyrir sköpun. Ég hef reyndar ekki ennþá alveg náð að hugsa það til enda hvernig væri að vera ekki þar inni, m.a. í sambandi við viðburði og halda tengslum við fólk. Auglýsa myndlistina mína og selja verk?? En maður ætti kannski að beita lykilspurningu minimalismans á þetta verkefni. "Veitir FB mér einhverja gleði?" Ég hreinlega veit það ekki? Ég ætla að hugsa það aðeins. Annars ætlaði ég að skrifa um sjálfið þegar ég byrjaði bloggfærsluna fyrir nokkrum dögum. Nú er ég búinn að gleyma hvað ég ætlaði að skrifa um það svo það verður að bíða betri tíma.

Meira mála mála

Mynd
Eitthvað hefur maður haldið áfram að mála. Það er gott og mér líður yfirleitt betur þegar ég mála. Þessa dagana reyni ég að sleppa svolítið fram af mér beislinu og hafa ekki áhyggjur af útkomunni. Mála bara með pensli, sleppa því teikna og láta það vaða. Stundum gott og stundum ekki eins gott, en yfirleitt betra en maður hafði þorað að vona. Bláfjall (28x38cm) vatnslitir á pappír

Málað

Mynd
Reif upp málningadótið í kvöld og málaði eina mynd. Reyndar 2 en hin var mög slæm. Þessa málaði ég með nokkuð stórum flötum pensli og teiknaði ekki neitt áður. Allt mjög frjálslegt og það var fyrir öllu að þetta var skemmtilegt. Óþvingað og skemmtilegt. Myndir sem er gaman að mála verða yfirleitt góðar.

You can't make this shit up

Um daginn var ég að hlusta á Útvarp Sögu og þá hringdi inn maður sem kunni skýringu á því hversvegna lambakjötið seldist ekki nægjanlega vel. Hann hafði borðað á veitingastað fyrir austan fjall og pantað lambasteik. Hún var borin fram blóðug!!! Það þarf bara að kenna kokkum landsins að elda svo þetta dýrindis kjöt fari að seljast.