Sjálfið

Oft hef ég verið á barmi þess að loka blogginu mínu og er ástæðan m.a. sú að maður fær alltaf einhverja útrás og eyðir alltof miklum tíma á fésbókinni. Nú síðustu misserin hefur þetta eiginlega verið að snúast við og mig langar að hætta á FB en halda áfram að blogga. Ég skrifa í rauninni aldrei neitt frá hjartanu inn á FB og fæ enga útrás þar fyrir sköpun. Ég hef reyndar ekki ennþá alveg náð að hugsa það til enda hvernig væri að vera ekki þar inni, m.a. í sambandi við viðburði og halda tengslum við fólk. Auglýsa myndlistina mína og selja verk??

En maður ætti kannski að beita lykilspurningu minimalismans á þetta verkefni. "Veitir FB mér einhverja gleði?" Ég hreinlega veit það ekki? Ég ætla að hugsa það aðeins.

Annars ætlaði ég að skrifa um sjálfið þegar ég byrjaði bloggfærsluna fyrir nokkrum dögum. Nú er ég búinn að gleyma hvað ég ætlaði að skrifa um það svo það verður að bíða betri tíma.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap