Færslur

Hræðilegur letidagur

Þá er hræðilegur letidagur að kveldi kominn. Ég var búinn í skólanum kl. 10 í morgun, fór í ræktina og hef svo síðan horft á eitthvað drasl í tölvunni og lagt mig. Hef ekki einu sinni nennt að taka þvottinn af snúrunni eða raka mig hvað þá annað. Það er ekki gott að eyða heilum degi í svona rugl, maður verður hálf þunglyndur af þessu kjaftæði. Það er svo sem ekkert annað að gera en að taka morgundaginn með sólatæklingu. Annars var ég búinn að spyrja Íslendingamafíuna hvort þau væru spennt að keyra eitthvað um helgina og aldrei að vita nema við skellum okkur eitthvað. Reyndar voru þau spennt fyrir að kíkja til Svíþjóðar að versla mat og sleppa við okrið sem hér viðgengst. Annars veit maður ekkert hvað maður getur skoðað hér í kring og þarf víst að fara nokkuð langt vestur og norður til að sjá klassíska norkska firði. Annars ekkert að frétta nema að maður er að fara til Svíþjóðar í næstu viku. Verð búinn í skólanum kl. 9 á þriðjudaginn og býst þá við að leggja af stað suður úr. Verð í Lu...

Gagnrýni

07:00: Vaknaði, skeit og át súrmjólk með Havre Fras (ekki samtímis). Fór á netið og drakk kaffi. 08:15: Hlustaði m.a á fyrirlestur um Evrópusambandsreglugerðir er snúa að matvælaöryggi. 12:30: Fór heim og fékk mér snarl, á netið og drakk kaffi. 14:00: Fór til Ski að versla mat. Kom við á Statoil og keypti þrif og bón á bílinn. 16:00: Tók netta axlaræfingu í gymminu og skellti mér í gufu og drakk hræring. 18:00: Fór heim og talaði við Tim og eldaði mér hvalkjötbollur í indverskri sósu með grjónum. 20:00: Fór í kaffi til Ragnars og Hrafnhildar þar sem rætt var um allt milli himins og jarðar Hvaltkjötsbollur Norðmanna bragðast mjög vel og gaf það deginum jákvætt yfirbragð. Bílþvotturinn á Statoil með bóni olli vonbrigðum. Kostaði nálægt 3000 krónum og var lélegur. Ekki er gefinn kostur á hefðbundnum kústþvotti og dróg það úr ánægju dagsins. Annars var dagurinn nokkuð fyrirsjáanlegur og flestir sem ég hitti skiluðu sínu ef undan er skilinn prófessorinn sem ræddi um matvælaöryggi. Han...

Oslo #2

Jæja, aðalega að láta vita að ég er á lífi og var að koma úr minni annari ferð til Osló. Nú ákvað ég að hafa vaðið fyrir neðan mig og nota þessar fínu almenningssamgöngur sem hér eru. Maður losnar jú við geðshræringuna sem fylgir því að keyra í Osló en það sorglega er að það er ódýrara að ferðast einn í bíl heldur en að taka lestina. Ferðin var reyndar skipulögð fyrir öll alþjóðakvikindin sem hér eru en við Íslendingarnir í hópnum ákváðum fljótlega að stinga hópinn af og kanna borgina á eigin forsendum. Það virkaði heldur ekki hvetjandi á okkur að fara í einhvern ratleik og horfa á þjóðernismyndband um Noreg í hádegismatnum, sem hefur sjálfsagt bara verið brauð hvort sem er. Við könnuðum borgina upp á íslenska mátann og þræddum verslanamiðstöðvar, búðir og hamborgarabúllur. Að sjálfsögðu verslaði maður sér fatnað og skó enda orðinn svo horaður af þessu ómeti sem maður fær hérna að maður passar ekki í gömlu larfana sína lengur. En við kíktum líka s.s á einn kastala og sáum nokkrar netta...

Veðurblíða og töluverð sól

Jæja nú hefur heldur betur hlaupið á snærið hjá sólþyrstum háskólanemum og veðurblíðan hér nær tæpast nokkru tali. Hitinn skríður vart undir 40°C á næturnar, enda sól allan sólahringinn. Vinnuvélar ryðja okkur leið í skólann í gegnum þykkt haf ávaxta og peningaseðla. Við stjórnvölinn sitja syngjandi mjaltastúlkur með ljósa lokka, íklæddar þjóðbúningum, skreyttum gulli og glissteinum. Í ánum rennur svo ískalt kampavín og kátir dvergar með hörpur sigla naktir niður á kanóum gerðum af kandís og glassúri. Þetta hefur haft töluvert jákvæð áhrif á sálartetrið og ekki spillir fyrir að maður er búinn að drulla sér af stað í ræktina. Hef farið 2 síðustu daga og líst bara vel á aðstöðuna og vaknaði óvenjuhress í morgun. Kannski líka vegna þess að ég tók eftir því í gær að lýsið sem ég keypti og hef verið að neyta er selalýsi og ég fylltist einhverjum karlmennskumóð við þá uppgötvun. Þessi fjandi hefur jákvæð áhrif og ég hef löngun í að bera þunga steina og höggva tré. Einu neikvæðu áhrifin eru a...

Jaktresan

Mynd
Jæja þá er maður kominn úr þessar undursamlegu veiðiferð og bölvaður hversdagsleikinn að taka við. Það er nú samt kannski honum að þakka hvað þetta er hrikalega gaman. Nú er bara að ná sér niður á jörðina og koma ferskur inná og setjann. Í stuttu máli gekk þetta ótrúlega vel fyrir sig allt saman. Fyrsta morguninn sátum við á sitthvorum staðnum, ég og pabbi og hann náði fínum bock. Fyrir röð tilviljanna sem ég nenni ekki að rekja hér (of langt mál) náðum við að sölsa undir okkur öðrum akri fyrir næsta morgun og þar skaut ég bock sem var alveg þrusu fallegur. Síðan höfum við séð fullt af dýrum og haft það bara kósí. Étið pulsur, beikon, egg, sænskar kjötbollur og danska fangelsikássu, sofið lítið, lagt okkur oft, drukkið kaffi, verið stungnir af moskíta-flugum, hugsað um veiðar og talað um þær. Svo að sjálfsögðu veitt. Ef ég fer með rétt mál þá féllu 5 bockar, 3 refir og einn greifingi í þessari ferð. Það voru að sjálfsögðu fleiri kallar sem komu að þessu . Ég á nú eftir að skrifa upp be...

Þetta er gullfallegt

Jæja ætli þetta verði ekki síðasti pósturinn minn fram yfir helgi því ég legg af stað til Svíþjóðar um hádegi á morgun. Fyrirlestrum sem áttu að vera eftir hádegi á morgun var skotið á frest. Djöfull var ég svekktur með það. Nú er maður aðeins að komast betur inn í þetta allt saman og orðinn aðeins rólegri yfir þessu. Síðan maður kom hefur manni alltaf fundist eins og maður sé að gleyma einhverju, að skrá sig í áfanga, skrá sig í próf, fara hingað og fara þangað. Fá aðgang að hinu og þessu og lykilorð eru orðin mín sérgrein. Þegar ég kom hingað biðu mín 4 mismunandi aðgangs og lykilorð sem ég varð svo að nota til að búa til 3 önnur mismunandi lykilorð og fá notendanafn í tölvukerfið. Lykilorð verða að vera allavega 8 stafir og innihaldi litla og stóra stafi, númer og allavega 1 tákn. Ekki má byra á stórum staf eða tölu því það er of einfalt að fatta orðið. Nú lít ég á stofnun eins og Háskólann á Akureyri sem anarkista batterí og efast um að ég geti aftur tamið mér ámóta viðurstyggileg ...

Viðsnúnings hressandi hristingur

Bæjarstjóri myrtur í sprengjuárás Bæjarstórinn og sýslumaðurinn í Kópavogi, sem er á suð- vesturhorni Íslands, létu lífið í sprengjuárás sem var gerð á þá í dag. Þrír aðrir létust einnig í sprengjuárásinni. Yfir 10 sprengjur eru sagðar hafa sprungið þegar bæjarstjórinn, Gunnar Birgisson, og sýslumaðurinn Þorleifur Pálsson létust. Þeir voru að aka frá Garðabæ til miðbæjar Kópavogs þegar árásin var gerð. Aðstoðarsýslumaðurinn í Kópavogi fyrirskipaði að útgöngubann myndi taka gildi kl. 19 að staðartíma í kjölfar árásarinnar. Mjög róstursamt hefur verið í Kópavogi að undanförnu og segir íslenska ríkisútvarpið að Kópavogsbær sé einangraður og njóti nær engrar verndar. Mikill erill hjá lögreglu í Bagdad í nótt - fangageymslur fullar Mikill erill var hjá lögreglunni í Bagdad í nótt. Talsvert var um pústra í miðborginni, en þar var mannmargt í nótt og ölvun talsverð. Íraska lögregla segir að níu hafi verið teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Þá voru fangageymslur fullar eftir nóttina. H...