Hræðilegur letidagur

Þá er hræðilegur letidagur að kveldi kominn. Ég var búinn í skólanum kl. 10 í morgun, fór í ræktina og hef svo síðan horft á eitthvað drasl í tölvunni og lagt mig. Hef ekki einu sinni nennt að taka þvottinn af snúrunni eða raka mig hvað þá annað. Það er ekki gott að eyða heilum degi í svona rugl, maður verður hálf þunglyndur af þessu kjaftæði. Það er svo sem ekkert annað að gera en að taka morgundaginn með sólatæklingu.

Annars var ég búinn að spyrja Íslendingamafíuna hvort þau væru spennt að keyra eitthvað um helgina og aldrei að vita nema við skellum okkur eitthvað. Reyndar voru þau spennt fyrir að kíkja til Svíþjóðar að versla mat og sleppa við okrið sem hér viðgengst. Annars veit maður ekkert hvað maður getur skoðað hér í kring og þarf víst að fara nokkuð langt vestur og norður til að sjá klassíska norkska firði.

Annars ekkert að frétta nema að maður er að fara til Svíþjóðar í næstu viku. Verð búinn í skólanum kl. 9 á þriðjudaginn og býst þá við að leggja af stað suður úr. Verð í Lundi fram á föstudag og þá förum við karlarnir vonandi upp til Smálanda að veiða. Ég þarf varla að taka það fram hvað mér þykir það ömurlegt að þurfa að fara á veiðar enn einu sinni en svona er lífið. Það þarf víst einhver að gera þetta. Síðan byrja ég í 2 áföngum vikuna eftir og allt verður komið á fullan gang að nýju. Hilsen, Bjarni

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Æjji, taktu bara i-podinn með þér þá reikna ég með að veiðiferðin verði bærilegri fyrir svona mann eins þig !
Nafnlaus sagði…
Jæja blessð lambið mitt! Alltaf gaman að lesa línurnar þínar. Gísli kallinn fylgist líka með þér. En mikið er ég feginn að hafa einhvern með mér í þessa þrautaferð til Smálanda. Það er huggun harmi gegn. Við verðum nefnilega þeir einu sem leggjum þessi ósköp á okkur. Kveðja, P
Nafnlaus sagði…
Þú gætir farið að taka road trip til Bryne Rogalandi, því Baldur er að fara að spila með þeim. Getur bara velverið að við Gazzi förum í trip til að sjá leik með stráknum..
Bjarni sagði…
Er það eitthvað ofan á brauð?? Ég veit hvar þrír staðir í Noregi eru og ég er á einum af þeim. Kæmi nú samt og kíkti á leik ef það er ekki andskotanum lengra.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap