Þetta er gullfallegt
Jæja ætli þetta verði ekki síðasti pósturinn minn fram yfir helgi því ég legg af stað til Svíþjóðar um hádegi á morgun. Fyrirlestrum sem áttu að vera eftir hádegi á morgun var skotið á frest. Djöfull var ég svekktur með það.
Nú er maður aðeins að komast betur inn í þetta allt saman og orðinn aðeins rólegri yfir þessu. Síðan maður kom hefur manni alltaf fundist eins og maður sé að gleyma einhverju, að skrá sig í áfanga, skrá sig í próf, fara hingað og fara þangað. Fá aðgang að hinu og þessu og lykilorð eru orðin mín sérgrein. Þegar ég kom hingað biðu mín 4 mismunandi aðgangs og lykilorð sem ég varð svo að nota til að búa til 3 önnur mismunandi lykilorð og fá notendanafn í tölvukerfið. Lykilorð verða að vera allavega 8 stafir og innihaldi litla og stóra stafi, númer og allavega 1 tákn. Ekki má byra á stórum staf eða tölu því það er of einfalt að fatta orðið. Nú lít ég á stofnun eins og Háskólann á Akureyri sem anarkista batterí og efast um að ég geti aftur tamið mér ámóta viðurstyggileg vinnubrögð eða unnið í jafn siðlausu andrúmslofti og fyrirfinnst á þeirri aumu stofnun.
Fór á fyrsta fyrirlesturinn í dag og leist svona líka ljómandi vel á aðstæður. Gaman að fá að sjá glærur og krítatöflu (ég er ekki að gera lítið úr þessu). Kennarinn, Birger Svihus er krakki á mínum aldri, kannksi aðeins eldri. Hann er stereótýpa af Norðmanni, lítur út eins og Þorgrímur Þráinson og stundar ábyggilega gönguskíði. Það sem toppaði svo fyrirlesturinn var að það sátu hann 4 Íslendingar og ég vona bara að við höfum ekki gert lítið úr öðrum með nærveru okkar. Að lokum hitti ég loksins Anders Kiessling sem er aðal mentörinn minn hérna í Noregi. Við ræddum golf og ég gat ekki betur en skilið hann þannig að ég ætti að koma með honum heim til Stockholms (hann er sænskur) og spila á vellinum þar sem Annika Sorenstam byrjaði að spila golf. Hann leit ekki út fyrir að vera brjálaður en ég er til í þetta, góð hugmynd sem sagt.
Jæja gott í bili. Ég hef dundað mér við að hlaða inn myndum á albúmið mitt en það eru bara veiðimyndir eins og venjulega. Maður fær aldrei leið á því að sortera þær og rifja upp. Bið að heilsa öllum sem ég þekki og farið vel með ykkur englarnir mínir

Ummæli
Vona að ferðin verði fín og ég bið að heilsa pabba þínum. Hér er 4 stiga hiti og þvílíkt ógeðsveður. Annars allt gott Egill sótti hryssurnar Línu og Ösku til Ak. og ætlaði með Kát til dýralæknis út af einhverri bólgu við lið á fæti. Fékk ekki tíma svo það á að sjá aðeins til. Góða ferð Bjarni minn og farðu varlega. M