Jaktresan




Jæja þá er maður kominn úr þessar undursamlegu veiðiferð og bölvaður hversdagsleikinn að taka við. Það er nú samt kannski honum að þakka hvað þetta er hrikalega gaman. Nú er bara að ná sér niður á jörðina og koma ferskur inná og setjann.

Í stuttu máli gekk þetta ótrúlega vel fyrir sig allt saman. Fyrsta morguninn sátum við á sitthvorum staðnum, ég og pabbi og hann náði fínum bock. Fyrir röð tilviljanna sem ég nenni ekki að rekja hér (of langt mál) náðum við að sölsa undir okkur öðrum akri fyrir næsta morgun og þar skaut ég bock sem var alveg þrusu fallegur. Síðan höfum við séð fullt af dýrum og haft það bara kósí. Étið pulsur, beikon, egg, sænskar kjötbollur og danska fangelsikássu, sofið lítið, lagt okkur oft, drukkið kaffi, verið stungnir af moskíta-flugum, hugsað um veiðar og talað um þær. Svo að sjálfsögðu veitt. Ef ég fer með rétt mál þá féllu 5 bockar, 3 refir og einn greifingi í þessari ferð. Það voru að sjálfsögðu fleiri kallar sem komu að þessu . Ég á nú eftir að skrifa upp betri lýsingu á ferðinni en set hana nú ekki inn á bloggið þar sem það er ábyggilega ekki pláss á internetinu fyrir söguna. Var svo að átta mig á því að gæsaveiðitímabilið er að byrja heima og vona að það skjóti enginn neitt á meðan ég er í burtu.

Jæja nú er ég bara farinn að rugla eitthvað enda búinn að sitja í umferðarhnút á 10 km/hraða á hraðbrautinni upp til Osló og láta svo rukka mig fyrir það í þokkabót. Setti inn myndir úr ferðinni í albúm en þær heppnuðust því miður óvenju illa. Þ.e myndirnar af okkur með dýrin eru ekki góðar en einhverjar myndir eru þarna sem sjálfsagt er gaman að skoða, sérstaklega fyrir refi. Svo til að toppa þetta þá hélt ég að ég hefði gleymt vélinni heima þegar ég skaut dýrið mitt en var víst með hana á mér. Hann er því nokkuð tuskulegur greyið á myndunum, enda búið að taka innan úr honum.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Jæja Vinur Dýranna! Ég er búinn að ráða mér lögfræðing vegna allra myndanna sem þú ert búinn að birta af mér! Hér hef ég gengið um í algerri villu, forðast að líta í spegil öðruvísi en með dökk sólgleraugu á rananum og talið mér trú um að ég væri einn af þeim sem njóta myndi eilífrar æsku!! Það er spurning hvort ekki eigi að taka af þér myndavélina þegar þú ferð yfir landamærin. Tala við tollinn.
Ég er að skipuleggja nýja ferð 7. - 9. sept. Ertu til?
Vi ses i kriget, Pápi
Bjarni sagði…
Vandamálið er bara að ég kemst alltaf í betra færi við þig heldur en dýrin áður en þú styggist og hleypur í burtu. Þegar við verðum komnir með almennilega myndavél með linsu þá kannski koma myndir af öðruvísi dýrum líka. Ef ég er velkominn í næstu ferð þá sé ég ekkert sem kemur í veg fyrir að ég mæti. Samkvæmt stundatöflu er ég aldrei í fyrirlestrum á föstudögum í september.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap