Gagnrýni

07:00: Vaknaði, skeit og át súrmjólk með Havre Fras (ekki samtímis). Fór á netið og drakk kaffi.
08:15: Hlustaði m.a á fyrirlestur um Evrópusambandsreglugerðir er snúa að matvælaöryggi.
12:30: Fór heim og fékk mér snarl, á netið og drakk kaffi.
14:00: Fór til Ski að versla mat. Kom við á Statoil og keypti þrif og bón á bílinn.
16:00: Tók netta axlaræfingu í gymminu og skellti mér í gufu og drakk hræring.
18:00: Fór heim og talaði við Tim og eldaði mér hvalkjötbollur í indverskri sósu með grjónum.
20:00: Fór í kaffi til Ragnars og Hrafnhildar þar sem rætt var um allt milli himins og jarðar

Hvaltkjötsbollur Norðmanna bragðast mjög vel og gaf það deginum jákvætt yfirbragð. Bílþvotturinn á Statoil með bóni olli vonbrigðum. Kostaði nálægt 3000 krónum og var lélegur. Ekki er gefinn kostur á hefðbundnum kústþvotti og dróg það úr ánægju dagsins. Annars var dagurinn nokkuð fyrirsjáanlegur og flestir sem ég hitti skiluðu sínu ef undan er skilinn prófessorinn sem ræddi um matvælaöryggi. Hann náði bara ekki að gera þetta trúverðugt.

Ég gef þessum degi 3 stjörnur af 5 mögulegum

Ummæli

Halldór sagði…
Vil betri lýsingu á morgunhægðunum, spurning hvort þú takir ekki upp á smá símoni hérna...
Bjarni sagði…
Já ég verð reyndar að viðurkenna að mér datt Símon í hug. Eftir smá óstöðugleika í hægðum fyrstu vikuna er þetta allt að koma til. Kannski vegna þess að ég hef verið að éta hvalket og fiskibollur. Þetta rann allt ljúflega og pappírsvinnan var í lágmarki alveg eins og best verður á kosið;)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap