Viðsnúnings hressandi hristingur
Bæjarstjóri myrtur í sprengjuárás
Bæjarstórinn og sýslumaðurinn í Kópavogi, sem er á suð- vesturhorni Íslands, létu lífið í sprengjuárás sem var gerð á þá í dag. Þrír aðrir létust einnig í sprengjuárásinni.
Yfir 10 sprengjur eru sagðar hafa sprungið þegar bæjarstjórinn, Gunnar Birgisson, og sýslumaðurinn Þorleifur Pálsson létust. Þeir voru að aka frá Garðabæ til miðbæjar Kópavogs þegar árásin var gerð.
Aðstoðarsýslumaðurinn í Kópavogi fyrirskipaði að útgöngubann myndi taka gildi kl. 19 að staðartíma í kjölfar árásarinnar. Mjög róstursamt hefur verið í Kópavogi að undanförnu og segir íslenska ríkisútvarpið að Kópavogsbær sé einangraður og njóti nær engrar verndar.
Mikill erill hjá lögreglu í Bagdad í nótt - fangageymslur fullar
Mikill erill var hjá lögreglunni í Bagdad í nótt. Talsvert var um pústra í miðborginni, en þar var mannmargt í nótt og ölvun talsverð. Íraska lögregla segir að níu hafi verið teknir fyrir akstur undir áhrifum áfengis. Þá voru fangageymslur fullar eftir nóttina.
Hópslagsmál brutust út rúmlega tvö í nótt á veitingastaðnum Khalil Jalil Hamza í miðborginni. Að sögn lögreglu kveiktu dyraverðir staðarins öll ljós, slökktu á tónlistinni og höfðu samband við lögreglu þegar allt var farið í háaloft. Að sögn lögreglu náðu upphafsmenn átakanna að forða sér áður en lögreglan kom. Einn fékk áverka á andliti og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Enginn var handtekinn vegna málsins.

Ummæli
Vonum að svona ófremdarástand færist ekki aftur heim í sveit á næstunni.