Oslo #2
Jæja, aðalega að láta vita að ég er á lífi og var að koma úr minni annari ferð til Osló. Nú ákvað ég að hafa vaðið fyrir neðan mig og nota þessar fínu almenningssamgöngur sem hér eru. Maður losnar jú við geðshræringuna sem fylgir því að keyra í Osló en það sorglega er að það er ódýrara að ferðast einn í bíl heldur en að taka lestina. Ferðin var reyndar skipulögð fyrir öll alþjóðakvikindin sem hér eru en við Íslendingarnir í hópnum ákváðum fljótlega að stinga hópinn af og kanna borgina á eigin forsendum. Það virkaði heldur ekki hvetjandi á okkur að fara í einhvern ratleik og horfa á þjóðernismyndband um Noreg í hádegismatnum, sem hefur sjálfsagt bara verið brauð hvort sem er. Við könnuðum borgina upp á íslenska mátann og þræddum verslanamiðstöðvar, búðir og hamborgarabúllur. Að sjálfsögðu verslaði maður sér fatnað og skó enda orðinn svo horaður af þessu ómeti sem maður fær hérna að maður passar ekki í gömlu larfana sína lengur. En við kíktum líka s.s á einn kastala og sáum nokkrar nettar byggingar. Maður veit allavega hvað snýr upp og niður þarna núna. Hef svo sem ekki fleiri orð um þessa ferð held ég en hendi inn nokkrum myndum í albúmið mitt.
Ummæli
hér eru allir hressir. Réttirnar gegnu vel, múgur og manns komu til okkar. Egill fór svo með litlu stelpunum að smala Helgey áðan. S.s. allt eins og það á að vera.
Söknum þín og hlökkum til að sjá þig.
Gagni þér vel og haltu endilega áfram að vera svona duglegur að skrifa.
Kv. M