Færslur

Dagur #30

Mynd
Það var styrktarsamhjól í gær og þar sem ég gat ekki hjólað tók ég að mér að aðstoða við undirbúning og grill. Eftir æfinguna í gær brunaði ég fram í fjörð og aðstoðaði við að taka á móti hjólafólki sem var í styrktarsamhjóli Akureyrardætra. Þetta fór fram á Hrísum og veðrið var mjög gott og allt gekk vel. Það var gaman að hitta þetta hressa og skemmtilega fólk og taka þátt í þessu. Harpa hjólaði inneftir en ákvað svo að koma með mér til baka á bílnum- sem ég held að hafi verið sterkur leikur. Ég var pínu aumur í öxlinni í gærkvöldi eftir þetta, enda hafði ég borið einhverja stóla og gert eitthvað sem ég hefði betur sleppt. En ég er búinn að vera fínn í dag og held að þetta sé allt að koma. Núna er stóra spurningin hvort ég treysti mér með börnunum í einhver almennileg tívolítæki í Köben. Eins og ég var búinn að nefna hér í síðasta pósti þá er formið að koma fínt til baka og mér líður ágætlega líkamlega. Ég skrúfaði niður kaffidrykkjuna í vinnunni og það hafði ótrúleg áhrif á mig. Í da...

Dagur #29

Mynd
Ég og Nestor frá Brasilíu.  Í fyrradag átti ég stefnumót við hjólreiðaferðalang sem ég hef verið í sambandi við í gegnum Instagram. Ég lofaði honum fyrir löngu að gefa honum einhverjar upplýsingar fyrir ferðina hans til Íslands en svo eiginlega dissaði ég hann. Ég var bara kominn með hausinn á kaf í eitthvað annað, var illa fyrir kallaður og hjólaferðalögin eiginlega komin í þriðja eða fjórða sæti á þeim tíma. En hann gafst aldrei upp á mér og á endanum náðum við saman á Bláu könnunni til að skiptast á hugmyndum og ræða saman. Það var ótrúlega gaman að hitta hann og þetta hrærði vel í hausnum á mér. Þetta er maður sem seldi fyrirtækið sitt og lagði heiminn að fótum sér.... eða hjólum kannski. Nestor ferðast um allan heim á hjóli, bloggar, skrifar bækur og heldur fyrirlestra. Samræður okkar fóru reyndar langt út fyrir ferðalögin sem slík, báðir áhugamenn um heimspeki og lífið almennt. Ég var eitthvað lítið gíraður í að hitta hann en gekk út af kaffihúsinu uppljómaður og staðráðinn í...

Dagur #27

Mynd
Svona leit skurðurinn út þegar ég tók umbúðirnar af. Þetta á nú vonandi eftir að dofna nokkuð. Spurning um að bæta við grjóthörðu húðflúri? Lífið heldur áfram og vonandi það sama um batann á viðbeininu að segja. Ég hef reyndar verið með smá pirring í þessu síðustu 2-3 daga. Ég hef ekki lent í þessu áður og get því ómögulega sagt til um hvort þetta sé ekki innan eðlilegra marka. Ég hallast nú frekar að því. Ég átti hjólaæfingu í gær og tók 3x17 mínútur á 170W og það tók aðeins í. Ég kláraði þetta nokkuð auðveldlega en púlsinn hjá mér var langt fyrir ofan eðlileg mörk. Það má því alveg færa rök fyrir því að ég hefði átt að bakka út úr þessu á fyrsta setti. En ég breyti því ekki hér eftir. Í dag byrjaði hvíldarpúlsinn hjá mér nokkuð eðlilega en núna seinnipartinn fór hann að rísa og ég kominn með smá hausverk. Ég hef grun um að þetta sé bara vökvaskortur vegna ofneyslu á kaffi. Á hverjum degi mæti ég til vinnu og lofa sjálfum mér að hemja mig í kaffinu- en það tekst aldrei. Síðan verð ég ...

Dagur #25

Mynd
Bestu börnin á Sigló. Í dag var Íslandsmótið í götuhjólreiðum. Það var mjög erfitt fyrir Hörpu að vera ekki með og því ákváðum við að fara bara úr bænum og dreifa huganum. Við keyrðum á Sigló og fengum okkur fínan göngutúr í skítakulda. Svo fórum við í bakaríið áður en við brunum á Dalvík þar sem við kíktum í sund. Þetta var fínn dagur. Það er frí hjá mér á hjólinu í dag og það er sennilega æskilegt. Er búinn að vera með smá pirring í öxlinni. Ég fór aðeins að rifja upp markmið sumarsins og gaman að fara yfir þau og sjá hvað er raunhæft að klára. Markmiðin voru svona: Taka þátt í fleiri mótum og hafa gaman Hjóla allavega 8000 km á árinu Taka þátt í 3 bikarmótum (aprí, mái og júní) Taka þátt í Íslandsmótinu 2022 (25. júní) Hjóla með Þolla Ak-Sörlastaðir-Suðurárb-Mývatnss Hjóla með börnunum DK til Svíþjóðar Hjóla 200 km í beit Skafa 3 míntútur af tímanum mínum upp í skíðahótel  Skafa 30 sekúndur af tímanum mínum upp skautasvellsbrekkuna Komast í 4 W/kg í FTP Það er ekki ennþá útiloka...

Dagur #23

Mynd
Við Harpa skelltum okkur að horfa á Íslandsmótið í tímatöku í gær. Það er s.s. ekki mikið að frétta af manni en maður átti þó ágætis viku bæði í prívatlífinu og vinnunni. Börnin hafa verið mikið upptekin að leika við vini sína, sérstaklega Dagbjört Lóa sem fer út á morgnana og sést bara með hléum fram til klukkan níu á kvöldin. Í kvöld kom hún meira að segja ekki inn fyrr en klukkan að verða tíu. Brynleifur er líka búinn að vera dulegur að hitta strákana en hangir samt kannski óþarflega mikið í tölvunni. Stundum finnst manni hann vera orðinn unglingur. Batinn hjá mér er alveg fínn en ég er búinn að vera með smá verki í þessu við og við í dag. Aðalega finn ég eitthvað þegar ég þarf að reygja mig eða beygja, t.d. við að setja á mig öryggisbelti. Mig langar að skella mér í sund á morgun og er að bíða eftir því að yfirhjúkrunarfræðingurinn í fjölskyldunni gefi mér álit á því. Við Harpa skelltum okkur á Íslandsmótið í tímatöku í gærkvöldi. Það var ræst út við Hrafnagil, hjólað suður að Smám...

Dagur #20 - vöðvarýrnun?

Mynd
Ég tók ytri umbúðirnar af skurðinum í dag og þetta lítur vel út. Nú eru bara eftir "steri strips" límplástrar sem mér er sagt að detti af með tímanum. Nú eru komnir 10 dagar frá aðgerð og það má eiginlega segja að hver dagur sé öðrum betri. Ég hef ekki þurft að taka nein verkjalyf og stundum kemur fyrir að ég gleymi þessu alveg í einhvern tíma. Ég var t.d. búinn að hjóla í nokkrar mínútur í dag án þess að muna eftir því að ég væri meiddur. Æfing dagsins var blanda af recovery og endurance. Æfingin í dag var æfing númer 2 í einhverju ferli sem ég kalla endurhæfingu. Ég tók 15 mínútur á recovery (120W), 15 mínútur á Z1 (170W) og endaði á korteri á 135 W. Það eru 2 dagar síðan ég hjólaði fyrri æfinguna og ég verð alveg að viðurkenna að þetta tók aðeins í. Í fyrradag gerði ég líka tilraun til að gera einhverjar magaæfingar og það varð til þess að ég fékk alveg djöfullega strengi framan í mjaðmirnar ( Psoas og Iliacus) og þetta leiðir alveg niður í eistu (svo ég sé ekkert að sykur...

Dagur #19

Mynd
Það var gott að komast á hjólið þó maður hafi ekki verið að gera neinar rósir. Ég ætla ekkert að ljúga því en ég er búinn að vera að fara í gegnum býsna erfiðan tíma og það tengist minnst þessu blessaða beinbroti- það grær með tímanum. Ég ætla ekkert að fara nánar út í það hér, en núna er ég að búta allt niður í minni verkefni, endurskipuleggja og forgangsraða. Þetta á bæði við um vinnuna og daglega lífið. Þó manni finnist að maður þurfi að vera glíma við alla skapaða hluti á sama tíma, þá er alltaf betra að fókusera á það mikilvægasta og fallast ekki hendur. Alltaf gera eitthvað og detta ekki í þann gír að fara að fresta hlutunum. Þolli var hjá mér í nokkra daga og þó ég vildi gjarnan hafa verið betur upp lagður og geta gert eitthvað af viti, þá var heimsóknin góð og við náðum góðu spjalli um lífið og tilveruna eins og okkur er lagið. Í gær fékk ég Hörð í heimsókn og hann setti upp fyrir mig nýja trainerinn. Eftir það hjólaði ég í 30 mínútur og það gekk bara fínt. Ég get hvílt báðar h...