Dagur #27
Svona leit skurðurinn út þegar ég tók umbúðirnar af. Þetta á nú vonandi eftir að dofna nokkuð. Spurning um að bæta við grjóthörðu húðflúri? |
Lífið heldur áfram og vonandi það sama um batann á viðbeininu að segja. Ég hef reyndar verið með smá pirring í þessu síðustu 2-3 daga. Ég hef ekki lent í þessu áður og get því ómögulega sagt til um hvort þetta sé ekki innan eðlilegra marka. Ég hallast nú frekar að því.
Ég átti hjólaæfingu í gær og tók 3x17 mínútur á 170W og það tók aðeins í. Ég kláraði þetta nokkuð auðveldlega en púlsinn hjá mér var langt fyrir ofan eðlileg mörk. Það má því alveg færa rök fyrir því að ég hefði átt að bakka út úr þessu á fyrsta setti. En ég breyti því ekki hér eftir.
Í dag byrjaði hvíldarpúlsinn hjá mér nokkuð eðlilega en núna seinnipartinn fór hann að rísa og ég kominn með smá hausverk. Ég hef grun um að þetta sé bara vökvaskortur vegna ofneyslu á kaffi. Á hverjum degi mæti ég til vinnu og lofa sjálfum mér að hemja mig í kaffinu- en það tekst aldrei. Síðan verð ég eins og slytti eftir hádegið, maginn fer á hvolf og ég alveg ómögulegur þegar ég kem heim úr vinnu. Síðan bráir yfirleitt af mér um kvöldmat en þá er ég gjarnan búinn að geyspa frá mér ráð og rænu.
Ég nenni þessu ekki lengur og ætla að vera grjótharður á morgun. Ég ætla að prufa að skammta mér bara 3 kaffibolla yfir daginn og sjá hvort það geri ekki eitthvað fyrir mér. Það er frekar erfið æfing á morgun og ég verð að vera þokkalega upplagður.
Ég sendi Stefáni sjúkraþjálfara í Eflingu tölvupóst í morgun varðandi meiðslin. Ég var farinn að hafa áhyggjur af því að komast ekki að ef bæklunarlæknirinn metur það svo að ég þurfi að komast í sjúkraþjálfun í ágúst. Stefán náttúrulega lofaði að koma mér að reyna að hjálpa mér. Minn maður.
Ummæli