Dagur #23

Við Harpa skelltum okkur að horfa á Íslandsmótið í tímatöku í gær.

Það er s.s. ekki mikið að frétta af manni en maður átti þó ágætis viku bæði í prívatlífinu og vinnunni. Börnin hafa verið mikið upptekin að leika við vini sína, sérstaklega Dagbjört Lóa sem fer út á morgnana og sést bara með hléum fram til klukkan níu á kvöldin. Í kvöld kom hún meira að segja ekki inn fyrr en klukkan að verða tíu. Brynleifur er líka búinn að vera dulegur að hitta strákana en hangir samt kannski óþarflega mikið í tölvunni. Stundum finnst manni hann vera orðinn unglingur.

Batinn hjá mér er alveg fínn en ég er búinn að vera með smá verki í þessu við og við í dag. Aðalega finn ég eitthvað þegar ég þarf að reygja mig eða beygja, t.d. við að setja á mig öryggisbelti. Mig langar að skella mér í sund á morgun og er að bíða eftir því að yfirhjúkrunarfræðingurinn í fjölskyldunni gefi mér álit á því.

Við Harpa skelltum okkur á Íslandsmótið í tímatöku í gærkvöldi. Það var ræst út við Hrafnagil, hjólað suður að Smámunasafni og til baka aftur. Okkur fannst gaman að fara og hitta fólkið þó við sjálf séum fjarri góðu gamni. Eins og sést á myndinni þá var líka skítakuldi og betra að vera í dúnúlpum heldur en í skin suit.

Nýja Pedla peysan sem ég keypti fyrir þá sem eyðilagðist

Æfing dagsins var upphitun og svo 2x20 mín á 170 vöttum. Æfingin var samtals 01:05 klst og ég fór 35 km. Þetta tók alveg í en ég held að ég sé allur að koma til. Púlsinn ennþá aðeins of hár en á móti kemur að hvíldarpúlsinn hjá mér er að detta niður. Núna held ég bara áfram að byggja ofaná á þetta og bæta inn meira sweet spot og threshold. Verst að ég verð akkúrat að komast í sæmilegt form aftur þegar ég þarf að fara út.

Ég skellti mér í nýju Pedla peysuna í dag til að sjá hvernig þetta kemur út við hjólabuxur. Hún er helvíti þægileg og mér finnst hún drullu flott, ekki verra að ég fékk hana á 50% afslætti. Hlakka til að prófa hana og ætla að fara að drífa mig í að panta hjálm. Hef ekkert ennþá heyrt hvort VÍS ætlar að borga þetta eða ekki.

Á morgun ætlum við Harpa að skella okkur eitthvað út úr bænum með börnin. Ætli við kíkjum ekki bara til Dalvíkur eða jafnvel Siglufjarðar. Við fáum okkur eitthvað að borða og svo kannski kíkjum við í sund. Ég sjálfur fæ reyndar seint leið á að skoða safnið um Jóhann risa en það er kannski bara vegna þess hvað ég er lítill.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap