Dagur #25
Bestu börnin á Sigló. |
Í dag var Íslandsmótið í götuhjólreiðum. Það var mjög erfitt fyrir Hörpu að vera ekki með og því ákváðum við að fara bara úr bænum og dreifa huganum. Við keyrðum á Sigló og fengum okkur fínan göngutúr í skítakulda. Svo fórum við í bakaríið áður en við brunum á Dalvík þar sem við kíktum í sund. Þetta var fínn dagur. Það er frí hjá mér á hjólinu í dag og það er sennilega æskilegt. Er búinn að vera með smá pirring í öxlinni.
Ég fór aðeins að rifja upp markmið sumarsins og gaman að fara yfir þau og sjá hvað er raunhæft að klára. Markmiðin voru svona:
- Taka þátt í fleiri mótum og hafa gaman
- Hjóla allavega 8000 km á árinu
Taka þátt í 3 bikarmótum (aprí, mái og júní)Taka þátt í Íslandsmótinu 2022 (25. júní)Hjóla með Þolla Ak-Sörlastaðir-Suðurárb-MývatnssHjóla með börnunum DK til Svíþjóðar- Hjóla 200 km í beit
- Skafa 3 míntútur af tímanum mínum upp í skíðahótel
- Skafa 30 sekúndur af tímanum mínum upp skautasvellsbrekkuna
- Komast í 4 W/kg í FTP
Það er ekki ennþá útilokað að ég geti keppt eitthvað meira. Ég ætla að halda því inni að keppa í Orminum á Egilsstöðum 13. ágúst. Íslandsmótið var í dag og ég treysti mér varla til að vera með í bikarmóti 6. ágúst (júní-bikarmótið er náttúrulega úr sögunni).
Hvað önnur markmið varðar, þ.e. þau sem snúa að einhverjum bætingum, þá er mikið eftir af árinu. Ég hef hrunið niður í þyngd og ef formið hjá mér verður fljótt að koma þá get ég alveg komist nálægt þessum 3 síðustu. Markmiðið með skíðahótelið er kannski frekar langsótt. Ef ég næ því mun ég alveg örugglega ekki gera mikið annað þann daginn.
Kannski að ég endi þennan pistil á því að dásama bakaríið á Siglufirði. Þjónustan var góð, það var huggulegt þar inni og brauðmetið var alveg geggjað. Ég trúi því varla heldur hvað það ódýrt, allavega miðað við Bakaríið við brúna. Við keyptum 2 risa ostaslaufur, 2 kleinuhringi, geggjaða langloku með kjúklingabringu, grænmeti og beikoni, karmellusnúð, kaffi, 3 kókómjólk og fullan poka af ástarpungum með súkkulaði. Þetta kostaði 4600 kr.-, allir voru pakksaddir og við tókum slatta með okkur út. Ég sé eftir að hafa ekki tekið miðann til að skoða hvort þetta hafi verið rétt.
Annars eru ástarpungarnir með súkkulaðinu eitthvað sem allir verða að prófa, þeir eru geggjaðir. Ég gleymdi að kaupa mér kleinu, en þær eiga víst að vera einhverjar þær bestu á landinu.
Ummæli