Dagur #30

Það var styrktarsamhjól í gær og þar sem ég gat ekki hjólað tók ég að mér að aðstoða við undirbúning og grill.

Eftir æfinguna í gær brunaði ég fram í fjörð og aðstoðaði við að taka á móti hjólafólki sem var í styrktarsamhjóli Akureyrardætra. Þetta fór fram á Hrísum og veðrið var mjög gott og allt gekk vel. Það var gaman að hitta þetta hressa og skemmtilega fólk og taka þátt í þessu. Harpa hjólaði inneftir en ákvað svo að koma með mér til baka á bílnum- sem ég held að hafi verið sterkur leikur.

Ég var pínu aumur í öxlinni í gærkvöldi eftir þetta, enda hafði ég borið einhverja stóla og gert eitthvað sem ég hefði betur sleppt. En ég er búinn að vera fínn í dag og held að þetta sé allt að koma. Núna er stóra spurningin hvort ég treysti mér með börnunum í einhver almennileg tívolítæki í Köben.

Eins og ég var búinn að nefna hér í síðasta pósti þá er formið að koma fínt til baka og mér líður ágætlega líkamlega. Ég skrúfaði niður kaffidrykkjuna í vinnunni og það hafði ótrúleg áhrif á mig. Í dag og í gær hef ég komið úr vinnunni hress og alveg laus við magavesen. Þessi kaffivél í vinnunni malar baunirnar og það er alltaf mjög fínmalaður salli sem sest inn á bollann og súrt bragð af kaffinu þegar það fer að volgna. Og ég er ekki búinn að vera einn um að finna þetta og við erum núna að skoða hvort við getum ekki fengið pumpukönnu. Heiðarlegt kaffi fyrir fólk í stjórnsýslu.

Annars er ég búinn að vera að grúska í æfingadagbókinni frá því í vetur, hlusta á podköst og lesa allskyns greinar um æfingar. Þar sem ég er sjálfur að þjálfa mig þá mátti alveg gera ráð fyrir því að ég myndi gera einhver mistök. Núna er ég búinn að reka mig á nokkur mistök sem ég gerði en ég kemst s.s. aldrei að því hvert prógramið hefði leitt mig þar sem það voru 25 dagar í að ég átti að toppa þegar ég krassaði. 

En ég held áfram að nördast og setja upp plan. Ég hlakka hrikalega til að komast í ræktina og vona því að batinn á öxlinni verði fínn.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap