Dagur #20 - vöðvarýrnun?

Ég tók ytri umbúðirnar af skurðinum í dag og þetta lítur vel út. Nú eru bara eftir "steri strips" límplástrar sem mér er sagt að detti af með tímanum.

Nú eru komnir 10 dagar frá aðgerð og það má eiginlega segja að hver dagur sé öðrum betri. Ég hef ekki þurft að taka nein verkjalyf og stundum kemur fyrir að ég gleymi þessu alveg í einhvern tíma. Ég var t.d. búinn að hjóla í nokkrar mínútur í dag án þess að muna eftir því að ég væri meiddur.

Æfing dagsins var blanda af recovery og endurance.

Æfingin í dag var æfing númer 2 í einhverju ferli sem ég kalla endurhæfingu. Ég tók 15 mínútur á recovery (120W), 15 mínútur á Z1 (170W) og endaði á korteri á 135 W. Það eru 2 dagar síðan ég hjólaði fyrri æfinguna og ég verð alveg að viðurkenna að þetta tók aðeins í. Í fyrradag gerði ég líka tilraun til að gera einhverjar magaæfingar og það varð til þess að ég fékk alveg djöfullega strengi framan í mjaðmirnar (Psoas og Iliacus) og þetta leiðir alveg niður í eistu (svo ég sé ekkert að sykurhúða þetta). Ég átti hreinlega erfitt með gang í dag. Ég veit ekki hvort þetta hafði áhrif á mig en mér leið eins og ég væri ekki búinn að hjóla í ár og átti erfiðara með að halda uppi góðum hraða á pedölunum. En góðu fréttirnar eru að púlsinn var ekki jafn hár og síðast, þó hann hafi ekki verið alveg eðlilegur. En líkaminn er sennilega líka bara eitthvað lurkum laminn eftir tjónið og ég ekki vel upp lagður út af álagi.

Ég ætla að halda áfram að vera skynsamur og bæta hóflega í ákefðina og lengdina eftir því sem á líður. Það versta í þessu er hvað er hrikalega erfitt að mótívera sig í þetta þegar maður er búinn að vera að hjóla úti. Á veturnar hefur maður ekkert val og því sættir maður sig frekar við það. Og það bætir ekki úr að geta ekki tekið almennilega á því og finnast maður vera orðinn hálfgerður aumingi. En ég ætla ekkert að gefast upp og veit að ég verð kominn í fínt form eftir 2 vikur.

Annað merkilegt í þessu er að ég er búinn að léttast um rúmlega kíló frá slysinu. Samt hefur mataræðið verið langt undir meðallagi og óþarflega mikið sukk í gangi. Ég er hræddur um að þetta sé vöðvarýrnun. Ég geri engar upphífingar, engar armbeygjur eða axlalyftur og svo hljóta lærin líka eitthvað að vera að rýrna. Sennilega ekki vitlaust að bæta aðeins við próteinneysluna, líka fyrir batann. Svo er bara að sjúga upp í nefið og halda áfram💪

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap